Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Oddur er lunkinn í því að koma knettinum í netið5. júní 2016 - Akureyri handboltafélag skrifarOddur markakóngur í þýsku B-deildinni Oddur Gretarsson fyrrum leikmaður Akureyrar varð í gær markakóngur þýsku B-deildarinnar þegar hann skoraði 7 mörk fyrir TV Emsdetten í lokaumferðinni. Oddur skoraði alls 261 mark í deildinni og var þremur mörkum fyrir ofan Christian Schäfer hjá Bietigheim. Við óskum Oddi að sjálfsögðu til hamingju með nýju nafnbótina en til gamans má geta að Oddur er næst markahæsti leikmaðurinn í sögu Akureyrar með 620 mörk í alls 124 leikjum. Mest skoraði hann 197 mörk á einu tímabili en það gerði hann 2010-2011 þegar Akureyri varð Deildarmeistari. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook