Tveir núverandi liðsmenn Akureyri handboltafélags voru í hópi brautskráðra frá Háskólanum á Akureyri í dag. Þetta eru þeir Halldór Logi Árnason og Kristján Orri Jóhannsson sem báðir luku BS gráðu í viðskiptafræði.
Arna Valgerður Erlingsdóttir leikmaður KA/Þór og raunar Akureyrar Handboltafélags árin 2006-2008 brautskráðist einnig í dag með BA próf í sálfræði.
Arna Valgerður í búningi Akureyrar árið 2007
Jón Heiðar Sigurðsson varð Íslandsmeistari með 2. flokki árið 2012
Þá brautskráðist í dag Jón Heiðar Sigurðsson með BEd gráðu í kennarafræðum en Jón Heiðar er fyrrum leikmaður Akureyrar og Hamranna.
Talandi um Akureyri og Hamrana þá brautskráðist Aðalsteinn Halldórsson með BA próf í lögfræði en Aðalsteinn lék með 2. flokki Akureyrar og Hömrunum.
Aðalsteinn var sömuleiðis með Íslandsmeistaraliði 2. flokks 2012
Til að ljúka þessari handboltatengingu brautskráningarnema dagsins þá var Hafrún Hafliðadóttir, kona Þrándar Gíslasonar fyrrum leikmanns Akureyrar Handboltafélags í hópnum en hún lauk BA próf í sálfræði.
Við sendum þeim öllum hamingjuóskir með áfangann.