Warning
: Undefined variable $udleiks in
/web/akhandadmin/public_html/index.php
on line
16
Grótta fór heim með öll stigin - Akureyri Handboltafélag
Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Stropus dró vagninn í markaskoruninni til að byrja með
16. september 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar
Grótta fór heim með öll stigin
Leikurinn fór rólega af stað nema hvað að Elvar Friðriksson var í ham hjá Gróttumönnum en hann skoraði þrjú af fyrstu mörkum Gróttu sem komust í 1-4. Karolis Stropus fór fyrir markaskorun Akureyrar og jafnaði í 5-5 með sínu þriðja marki.
Í kjölfarið náði Akureyri tveggja marka forskoti 7-5 og hélst hún upp í 9-7 en Grótta átti þrjú síðustu mörk fyrri hálfleiks og leiddi því 9-10 í hálfleik.
Allt var í járnum í upphafi seinni hálfleiks, liðinu skiptust á forystunni upp í 13-13 en þá kom mjög slakur kafli hjá Akureyri og Grótta skoraði sex mörk í röð, staðan orðin ískyggileg, 13-19 og einungis rúmar sjö mínútur til leiksloka.
Þá hrökk Mindaugas Dumcius í gang en hann hafði ekki náð að skora fram að því. Grótta hélt þó sínu striki og þegar þrjár mínútur voru eftir var forysta þeirra ennþá sex mörk, 15-21.
Sigþór Árni Heimisson í árás á Gróttumenn
Þessar lokamínútur voru eign heimamanna sem börðust frábærlega og náðu að skora fimm mörk án þess að Grótta næði að svara, en því miður þá var tíminn á þrotum og Gróttumenn fögnuðu eins marks sigri, 20-21.
Í heildina var varnarleikur Akureyrar býsna góður en sóknarleikurinn verulega kaflaskiptur og því fór sem fór.
Mörk Akureyrar:
Karolis Stropus 4, Mindaugas Dumcius 4, Andri Snær Stefánsson 3 (2 úr vítum), Friðrik Svavarsson 3, Brynjar Hólm Grétarsson 2, Sigþór Heimisson 2, Kristján Orri Jóhannsson 1 (úr víti) og Róbert Sigurðarson 1.
Tomas Olason stóð í markinu allan tímann og varði 11 skot, þar af 1 vítakast.
Mörk Gróttu:
Júlíus Þórir Stefánsson 4, Finnur Ingi Stefánsson 4(3 úr vítum), Elvar Friðriksson 4, Nökkvi Dan Elliðason 4, Þráinn Orri Jónsson 2, Árni Benedikt Árnason 1, Leonharð Harðarson 1 og Vilhjálmur Geir Hauksson 1.
Lárus Helgi Ólafsson varði 19 skot í marki Gróttu, þar af 2 vítaköst.
Karolis Stropus var varlinn besti leikmaður Akureyrarliðsins en Lárus Helgi Ólafsson leikmaður Gróttuliðsins og fengu báðir matarkörfu frá Norðlenska að launum.
Menn leiksins með viðurkenningar sínar
Akureyri Handboltafélag hefur tekið upp þá nýbreytni að sýna beint frá heimaleikjum sínum og var leikurinn frumraun Akureyri-TV hvað þetta varðar. Leikurinn er síðan aðgengilegur á Youtube.com.
Smelltu hér til að horfa á útsendinguna frá leiknum
.
Það er stutt í næsta leik í Olís deildinni því á sunnudaginn heldur Akureyrarliðið til Vestmannaeyja og leikur við heimamenn klukkan 15:00. Við vonumst að sjálfsögðu til að Eyjamenn sýni leikinn í beinni og munum ef af verður vísa á útsendinguna.
1. Deild karla á laugardaginn
Í millitíðinni er heimaleikur Ungmennaliðs Akureyrar á laugardaginn þegar liðið tekur á móti Ungmennaliði Vals. Sá leikur verður í Íþróttahöllinni klukkan 14:00 á laugardaginn. Við hvetjum alla til að kíkja á leikinn það er frítt inn.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson