Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Viðtöl eftir Gróttuleikinn - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Sverre fylgist íbygginn með sínum mönnum

16. september 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Viðtöl eftir Gróttuleikinn

Blaðamenn mbl.is og visir.is tóku viðtöl strax eftir leikinn og vitunum við í þau hér í framhaldinu. Einar Sigtryggsson stóð vaktina fyrir mbl og náði tali af Sverre Andreas Jakobsyni, þjálfara Akureyrar og markverði Gróttu, Lárusi Helga Ólafssyni sem var klárlega maður leiksins. Gefum Einari orðið:

Sverre: Sóknarleikurinn er ekki nógu góður

Það var óvenju þungt hljóðið í Sverre Andreas Jakobsyni, þjálfara Akureyringa í Olís-deildinni í handbolta, eftir að lið hans hafði tapað 20:21 gegn Gróttu í kvöld. Þeir sem þekkja Sverre vita að það er stutt í brosið hjá honum og jafnan gott hljóð í honum þrátt fyrir að allt hafi gengið á afturfótunum hjá liði hans. Sverre var fús í viðtal eftir leik, reyndar eins og ávallt.

„Því miður þá spiluðum við þennan leik ekki nægilega vel og við eigum svolítið verk framundan. Sóknarleikurinn er ekki nógu góður. Menn eru greinilega eitthvað óöruggir ennþá og það sést berlega í okkar leik. Við þurfum að finna lausn á því. Við eigum ennþá nokkuð í land með að koma nýju mönnunum á fullt skrið en erum að vinna í því. Liðið er nokkuð breytt frá því í fyrra en það er þetta tímabil sem skiptir öllu og ekkert annað. Hvað gerist núna skiptir öllu máli.“

Norðanmenn eru án stiga eftir tvo fyrstu leikina. Voru þeir gegn Stjörnunni og Gróttu, liðum sem ættu að vera svipuð að styrkleika og lið Akureyringa.
„Þetta eru vonbrigði. Það er ekki spurning. Það er bara tvennt í stöðunni. Annað hvort að væla eða halda bara áfram. Það er erfitt að kyngja þessu í dag. Maður sofnar örugglega seint og á erfiðan dag á morgun en svo verðum við að fara að einbeita okkur að næsta verkefni. Það er spilað þétt nú í byrjun móts og leikur strax á sunnudaginn.
Við erum bara með verkefni til að kljást við og tökum það. Nú þarf að hugsa í lausnum og við þurfum að einbeita okkur að okkar leik. Það er fátt jákvætt hægt að taka úr leiknum í kvöld, ef ég á að vera alveg hreinskilinn, vonbrigðin eru það mikil. Þó verður að segja að vörnin hélt nokkuð vel á löngum köflum. Það bara dugði skammt það sem við vorum í bölvuðum vandræðum með annað. Sóknarleikurinn og hraðaupphlaupin er eitthvað sem við erum að vinna í og ég hélt að við værum komnir lengra með þá þætti en það er greinilegt að svo er ekki,“ sagði Sverre að lokum.


Sverre tekur fullan þátt í leiknum og uppskar gult spjald

Lárus Helgi: Hlynur vann alltaf kjötkörfuna

Hann var heldur betur hress, markvörður Gróttumanna eftir að lið hans hafði lagt Akureyri 20:21 í Olís-deildinni í handbolta á Akureyri í kvöld. Lárus Helgi Ólafsson var langbesti maður vallarins og hann lagði grunn að góðum sigri með fantamarkvörslu lengstum í leiknum. Nítján skot, tvö varin víti, sigur og matarkarfa var uppskeran hjá Lárusi og var hann gripinn í stutt spjall eftir leik.

„Maður biður ekki um neitt meira hérna fyrir norðan. Það er alltaf æðislegt að koma á Akureyri og hvað þá þegar maður tekur með sér tvo punkta í farteskinu heim á leið. Þetta var alveg þokkalega öruggt hjá okkur þótt við höfum misst forskotið niður þarna í lokin. Við vorum náttúrulega orðnir fjórir á móti sex en þetta var samt aldrei í neinni hættu. Það varð að gera þetta smá spennandi fyrir áhorfendur.“

Og hvernig líst svo markmanninum á tímabilið. Grótta er búin að vinna báða leiki sína, þrátt fyrir að vera að púsla saman nýju liði.
„Það er frábært að hafa náð að landa tveimur sigrum en við erum bara sultuslakir og með báða fætur á jörðinni. Við eigum FH næst og svo Stjörnuna og það verða tveir rosalegir leikir og gífurlega mikilvægir. Við fögnum hverju einasta stigi enda ekkert gefið í þessu. Við misstum þrjá máttarstólpa úr liðinu og vorum frekar seinir að fá nýja menn inn. Ég held að við eigum eftir að slípa liðið betur saman og það mun bara koma hægt og rólega. Það sést alveg á leik okkar í dag að það er margt að vinna í. Við áttum nokkra virkilega góða kafla í sóknarleiknum og þess á milli duttum við all svakalega niður.“

En hvað telur Lárus vera lykilinn að stórleik hans í dag.
„Já, fyrir utan það að það er alltaf frábært að koma til Akureyrar þá tel ég að það litla sem ég lærði þegar ég var í rammanum með Hlyni Morthens í Val hafi skipt öllu. Hann vann nefnilega alltaf kjötkörfuna, sem fæst fyrir að vera besti maður liðs síns, þegar hann kom norður til að spila gegn Akureyri. Það skilaði sér bara í dag“ sagði Lárus Helgi og bætti við að Akureyringar ættu að íhuga að kaupa Hlyn frá Val en þeirri hugmynd hefur iðulega skotið upp kollinum meðal norðanmanna eftir að Hlynur og Valsmenn hafa verið í heimsókn.


Lárus Helgi varði tvö vítköst í leiknum en hér kom Kristján Orri boltanum í netið

Það var Ólafur Haukur Tómasson sem sá um fréttaskrifin fyrir visir.is en hann ræddi við þjálfarana, Ingimund Ingimundarson og Gunnar Andrésson.

Ingimundur: Þetta var of kaflaskipt hjá okkur

„Fyrst og fremst einkar slæmur kafli í seinni hálfleik. Við vorum að klúðra ógrynni af færum - misgóð auðvitað en mörg mjög góð. Það vantar bara meiri heild í þetta hjá okkur, þetta er bara alltof kaflaskipt hjá okkur, okkur vantar fleiri mörk hægra megin. Þetta var bara alltof kaflaskipt hjá okkur og sérstaklega í seinni hálfleik,“ sagði Ingimundur Ingimundarson, leikmaður og aðstoðarþjálfari Akureyrar eftir leikinn.

„Við höfum fulla trú á okkur og hefðum viljað standa hér í dag með fjögur stig en því miður er það ekki þannig og eitthvað sem við verðum að bæta fyrir. Skoða okkar leik enn frekar. Við eigum svo mikið inni og það er sárast“.


Ingimundur var í hlutverki aðstoðarþjálfara í leiknum

Gunnar: Við erum að pússla þessu saman

„Ég er gríðarlega sáttur með sigur og fannst við spila frábæran varnaleik, þeir áttu erfitt með að skora og Lárus var frábær fyrir aftan vörnina. Við vorum að vinna þetta fyrst og fremst á frábærum varnarleik og góðri markvörslu.“ Sagði Gunnar Andrésson, þjálfari Gróttu hæst ánægður eftir sigur sinna manna í kvöld.

„Við erum að pússla þessu saman. Höfum verið í miklum meiðslum og vantað í mannskapinn. Við höfum aldrei getað hafa verið með fullt lið svo við erum svolítið í startblokkunum svo við vitum ekki hvar við erum en við ætlum okkur að vera drullu góðir þegar við komumst á skrið.“

Grótta gæti verið að ná sér í mjög mikilvæg stig upp á framhaldið með því að taka stigin tvö á Akureyri og telur Gunnar að þetta muni hafa góð áhrif á sitt lið sem eigi enn eftir að sýna sitt rétta andlit.

„Þetta er mjög gott fyrir okkur og gefur okkur sjálfstraust. Við erum með nýtt lið og erum að pússla þessum saman, við verðum bara betri, sagði Gunnar að lokum.


Gunnar fylgist íbygginn með sínum mönnum á vellinum

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson