Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Selfyssingar eru erfiðir heim að sækja1. október 2016 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: Útileikur á Selfossi Akureyrarliðið mætir á Selfoss í dag í fimmta leikinn í Olís deildinni. Andstæðingarnir eru heimamenn sem unnu sig upp í Olís deildina í vor eftir hörkueinvígi gegn Fjölni. Þjálfari Selfyssinga er norðanmaðurinn Stefán Árnason en hann þjálfaði liðið einnig síðasta tímabil. Selfyssingar styrktu lið sitt töluvert í sumar, endurheimtu skyttuna Einar Sverrisson sem hefur leikið með ÍBV síðustu tvö tímabil. Þá fengu þeir línumanninn Guðna Ingvarsson sem kom frá Gróttu eftir að hafa verið í liði ÍBV þar áður. Markvörðurinn Grétar Ari Guðjónsson kom frá Haukum þannig að Selfoss liðið er býsna vel mannað. Selfyssingar byrjuðu deildina frábærlega, unnu örugga sigra á Aftureldingu og Val í fyrstu umferðunum, töpuðu naumlega fyrir Haukum á heimavelli en máttu sætta sig við óvænt fjögurra marka tap gegn Fram í síðustu umferð. Þetta er annar heimaleikur Selfoss á tímabilinu og við væntum þess að leikurinn verði sýndur beint á Selfoss TV líkt og þeir sýndu Haukaleikinn.Hér er hægt að fylgjast með útsendingunni frá leiknum . Við uppfærum þessa tengingu þegar við vitum meira en leikurinn hefst klukkan 15:00 í dag. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook