Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Ísinn brotinn á Selfossi og tvö stig í hús - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Klassaleikur hjá Andra Snæ í dag

1. október 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Ísinn brotinn á Selfossi og tvö stig í hús

Akureyri gerði heldur betur góða ferð á Selfoss og sóttu langþráð fyrstu stig tímabilsins í mögnuðum leik. Það var greinilegt að liðið kom afar vel stemmt í leikinn og leikgleðin skein af liðinu. Selfyssingar komust í 4-2 en Akureyri jafnaði og komst yfir í 5-6. Nú voru það Selfyssingar sem jöfnuðu í 6-6 en í kjölfarið komu þrjú norðlensk mörk í röð og staðan orðin 6-9.
Sá markamunur hélst upp í 9-12 en Selfyssingar voru ekki af baki dottnir og jöfnuðu leikinn í 12-12. Akureyringar gáfu þá í á nýjan leik og áttu næstu þrjú mörk en Selfyssingar skoruðu síðasta mark hálfleiksins þannig að staðan í hálfleik var 13-15 Akureyri í vil.

Áfram var leikurinn í járnum í seinni hálfleiknum en Akureyri með frumkvæðið. Um miðbik hálfleiksins kom frábær 5 – 1 kafli hjá Akureyringum sem virtust vera að ganga frá heimamönnum, staðan orðin 20 – 25. En Selfyssingar voru ekki á því að gefast upp og svöruðu með fjórum mörkum í röð, enn átta mínútur eftir og spennan í hámarki

Karolis Stropus hjó á þennan hnút og skömmu síðar voru Akureyringar komnir þrem mörkum yfir 26 - 29. Þegar fjórar sekúndur voru eftir af leiknum tóku Sverre og Ingimundur leikhlé sem heimamönnum þótti greinilega sérkennilegt enda leikurinn unninn. En það var aldeilis ekki til ónýtis því þessar sekúndur nýttust í frábært sirkusmark hjá Friðrik Svavarssyni sem innsiglaði þriggja marka sigur Akureyrar 29 – 32.


Sverre og Ingimundur undirbjuggu liðið frábærlega fyrir leikinn

Arnar Þór Fylkisson stóð vaktina í markinu í forföllum Tomasar og Bernharðs. Arnar stóð svo sannarlega fyrir sínu, og átti sinn þátt í sigrinum með þrettán skot varin.


Arnar Þór stóðst frumraunina sem aðalmarkvörður með prýði

Það var þó fyrirliðinn, Andri Snær Stefánsson sem fór fyrir sínum mönnum, skoraði 11 mörk þar af 6 úr vítum, fiskaði jafnframt tvö þeirra sjálfur.


Andri Snær var frábær í dag og dreif sína menn áfram af krafti

Varnarleikurinn var flottur og höfðu menn góð tök á Selfyssingum, Stropus og Mindaugas voru drjúgir í sóknarleiknum, maður hefði kannski viljað sjá Kristján Orra fá meira úr að moða í hægra horninu en Kristján minnti vel á sig með þrem góðum mörkum undir lok leiksins. Brynar Hólm kom sterkur inn barðist vel í vörninni og skoraði þrjú glæsimörk. Patrekur Stefánsson átti sömuleiðis fína innkomu og gott að sjá að ungir leikmenn fengu að spreyta sig í leiknum.

Mörk Akureyrar: Andri Snær Stefánsson 11 (6 úr vítum), Karolis Stropus 5, Mindaugas Dumcius 5, Brynjar Hólm Grétarsson 3, Kristján Orri Jóhannsson 3, Friðrik Svavarsson 2, Patrekur Stefánsson, Róbert Sigurðarson og Sigþór Árni Heimisson 1 mark hver.
Arnar Þór Fylkisson stóð í markinu allan leikinn og varði 13 skot.

Mörk Selfoss: Elvar Örn Jónsson 7, Andri Már Sveinsson 6, Teitur Örn Einarsson 4, Einar Sverrisson 3, Eyvindur Hrannar Gunnarsson 3, Hergeir Grímsson 3, Árni Guðmundsson, Guðjón Ágústsson og Magnús Öder Einarsson 1 mark hver.
Í marki Selfyssinga vörðu Grétar Ari Guðjónsson 10 skot og Helgi Hlynsson 1 skot.

Leikur Selfoss og Akureyrar var sýndur beint á Selfoss TV og geta þeir sem misstu af leiknum horft á hann með því að smella hér.

Nú er bara að halda áfram á þessari braut, heldur betur magnaður leikur framundan en Akureyri tekur á móti Íslandsmeisturum Hauka í KA heimilinu næstkomandi miðvikudag.

Jafnframt minnum við á að Ungmennalið Akureyrar leikur sinn annan heimaleik í 1. deild karla klukkan 15:00 á morgun, sunnudag í KA heimilinu. Andstæðingar þeirra eru Þróttarar og hvetjum við alla til að mæta og styðja strákana, það er frítt á leikinn!
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson