Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Handboltadagur á Glerártorgi á laugardaginn - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Komdu og hittu leikmenn liðsins

11. nóvember 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Handboltadagur á Glerártorgi á laugardaginn

Það er létt yfir handboltamönnum á Akureyri eftir góðan sigur á Stjörnunni í gærkvöldi. Leikmenn liðsins verða með létt glens og gaman á Glerártorgi á milli klukkan 14:00 og 17:00 á laugardaginn og allir velkomnir til að taka þátt í fjörinu.

Sett verður upp handboltamark og hægt að spreyta sig gegn markvörðum liðsins. Einnig geta menn sýnt hittni sína með því að skjóta á sérstakt Orku-mark sem verður á staðnum.

Leikmenn munu einnig aðstoða gesti og gangandi við að ná sér í Orkulykilinn sem veitir notandanum allt að 10 krónu afslátt af eldsneytislítranum auk fleiri fríðinda og styrkir jafnframt Akureyri Handboltafélag í leiðinni. Það er rétt að ítreka að Orkulykillinn er notandanum algjörlega að kostnaðarlausu og einmitt þvert á móti hagnast bæði notandinn og Akureyri á notkun hans.

Eitt og annað verður í boði, nokkrir styrktaraðilar Akureyri verða með í fjörinu þannig að endilega láttu sjá þig á Glerártorgi á morgun, laugardag milli klukkan 14:00 og 17:00.

Þeim sem komast ekki á Glerártorgið en vilja ná sér í Orkulykil Akureyrar eða fræðast um lykilinn er bent á að smella hér.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson