Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Friðrik og Andri Snær voru í viðtölum eftir leikinn11. nóvember 2016 - Akureyri handboltafélag skrifarViðtöl eftir leik Akureyrar og Stjörnunnar Líkt og oft áður þá voru blaðamenn mbl.is og visir.is mættir til að fylgjast með heimaleik Akureyrar og eiga þeir heiður skilið fyrir sitt framlag. Það vekur hinsvegar alltaf meiri og meiri athygli að RÚV hefur ekki enn sýnt áhuga á að senda starfsmenn sína til að fylgjast með heimaleik Akureyrar á tímabilinu. En gefum Einari Sigtryggssyni blaðamanni mbl.is orðið, hann ræddi við leikmennina Friðrik Svavarsson og Sveinbjörn Pétursson:Friðrik: Hélt að Sverre ætlaði að afhausa mig Friðrik Svavarsson, línumaður Akureyringa, gat brosað í kampinn eftir að lið hans hafði lagt Stjörnuna í Olís-deild karla í kvöld. Var Akureyri að vinna fyrsta heimasigur vetrarins og þurfti mikið að hafa fyrir honum en leiknum lauk 24:20. „Þetta var virkilega mikilvægur sigur fyrir okkur. Við erum búnir að vinna töluvert í okkar málum og byggja okkur upp sem lið og við erum að springa út núna.“ Hvernig var undirbúningurinn þegar vitað var að tveir lykilmenn yrðu ekki með, þeir Sigþór Árni og Brynjar Hólm. Menn hafa ekkert verið smeykir? „Sko, það talar enginn um þetta. Við erum ekkert að skýla okkur á bak við einhver meiðsli eða eitthvað svoleiðis. Við erum alltaf með fullan hóp og allir sem eru með eru tilbúnir að leggja sig 100% fram, alveg sama hverjir það eru og alveg sama hverjir eru inni á.“Friðrik Svavarsson kominn í gegn og mark í uppsiglingu
En að Friðriki sjálfum, sem einhverra hluta vegna er kallaður Friðrik axlir meðal liðsfélaganna. Nú ert þú alltaf að spila betur á línunni og nýtir færin betur en áður. Er einhver galdur á bak við það, kannski aukaæfingar klukkan sjö á morgnana? „Ég fer reyndar í ræktina klukkan sex á morgnana, fyrir vinnu. En það er enginn galdur á bak við þetta. Líklega er þetta bara hluti af því að við erum að vaxa sem lið,“ sagði kappinn, hæverskan uppmáluð. Friðrik stal svo eiginlega senunni á lokamínútunni þegar hann skoraði með skoti eftir uppstökk við punktalínuna við mikla kátínu áhorfenda. Hvað var það? „Ég hélt að Sverre ætlaði að afhausa mig þegar ég horfði á hann eftir skotið. Sem betur fer þá var boltinn inni. Þetta var bara svona andartak sem kemur yfir mann og ég fann að ég myndi skora.“ Svo þarf eitthvað að ræða næstu skref. „Það er búið að taka sinn tíma að slípa liðið saman og við erum kannski fyrst núna að sýna hvað í okkur býr og hvað það er góð liðsheild í hópnum. Báðir Litháarnir eru partur af liðinu og svo er Igor kominn í hópinn og við erum bara ein heild. Við tökum vel á móti öllum og erum ein fjölskylda,“ sagði hinn skemmtilegi línumaður að lokum.Sveinbjörn: Áttum hvert einasta orð skilið Sveinbjörn Pétursson var á kunnuglegum slóðum í kvöld þegar hann varði mark Stjörnunnar gegn Akureyringum í Olís-deild karla. Hann lék með Þór í yngri flokkunum og svo með liði Akureyrar áður en hann hélt til Þýskalands í atvinnumennsku. Má segja að Sveinbjörn, eða Bubbi eins og hann er iðulega kallaður, sé enn í guðatölu hjá Akureyringum en hann var algjör lykilmaður í liði norðanmanna þegar það barðist um Íslandsmeistaratitla fyrir nokkrum misserum. Bubbi stóð fyrir sínu í leiknum þrátt fyrir fjögurra marka tap Stjörnunnar. Auðvitað var hann súr með úrslitin og hafði þetta að segja. „Við náðum þeim aldrei í þessum leik. Þeir byrjuðu betur og voru yfir en forystan var aldrei það stór að það væri ekki hægt að vinna hana upp. Þetta voru þrjú til fimm mörk og maður hefði kannski haldið að með góðum kafla hjá okkur og slæmum kafla hjá þeim myndum við ná þeim og gera þetta spennandi. Góðu kaflarnir hjá okkur voru bara of stuttir og þeir svöruðu alltaf.“Sveinbjörn kemur boltanum í leik
En hvernig var fyrir hann að koma aftur norður? „Auðvitað var mjög gaman að koma hingað og sjá mörg kunnugleg andlit í stúkunni. Ég vildi vissulega sýna mig fyrir þeim og standa mig vel fyrir liðið mitt. Þetta er sérstakt, ég neita því ekki. En það er langt síðan ég kom hérna í KA-heimilið. Ég var vel stemmdur en þó vantaði upp,á hjá mér. Jú, ég varði vel á köflum en þeir kaflar voru ekki nógu langir. Það var þarna talsvert af mörkum sem ég get tekið beint á mig. Liðið þarf bara á því að halda að ég verji þessa bolta til að við eigum möguleika á sigri. Og ég tek einhver mörk algjörlega á mig.“ Nú hefur ekki gengið nógu vel eftir góða byrjun á mótinu. Fimm tapleikir í síðustu sex leikjum. Kanntu einhverjar skýringar á því? „Við byrjuðum mótið vel og erum með gott lið. En við höfum verið að klikka í síðustu leikjum. Ég veit ekki hvað veldur. Þetta er mjög jöfn deild og það má aldrei slaka neitt á. Einar leggur leikina vel upp og það gengur fínt á æfingum en það er eitthvað sem vantar þessa stundina. Ég get ekki talað fyrir hina en hugsanlega vantar einhvern karakter eða gæði til að vinna leiki í þessari deild. Hver leikur er virkilega erfiður og það þarf að koma meira frá hverjum og einum í liðinu. Við vissum það fyrir mót að við gætum gert góða hluti en yrðum að hafa fyrir hverju einasta stigi. Það hefur sýnt sig í leikjum vetrarins. Í öllum leikjunum sem við höfum náð stigi út höfum við gjörsamlega lagt allt í leikinn. Við erum með tvö jafntefli og tvo eins marks sigra. Maður skapar sína eigin heppni og við þurfum bara að fara að grafa djúpt í okkur. Ég kom inn í hópinn í sumar og leist strax vel á liðið. Við erum með mjög flotta leikmenn og nokkra utan hópsins sem gætu komið inn. Það búa mikil gæði í þessu liði en við þurfum að kalla þau fram. Við sem erum inni á vellinum verðum bara að svara fyrir þetta og ég er viss um að við mætum grimmir til leiks á mánudaginn gegn FH-ingum.“ Að lokum varð blaðamaður að spyrja Bubba um það hvernig upplifum það var að sitja inni í klefa eftir tapleikinn í kvöld og hlusta á Einar Jónsson þjálfara hreinlega öskra á leikmenn og segja þeim til syndanna. Alex Ferguson hefði eflaust orðið stoltur af kjarnyrtri ræðu Einars inni í klefa skömmu eftir leik. „Við áttum hvert einasta orð skilið. Við unnum okkur ekki fyrir neinu hrósi. Einar er mjög sanngjarn og lætur okkur heyra það þegar við á en á móti þá hrósar hann okkur þegar við eigum það skilið. Ég vil að það komi fram,“ sagði Bubbi að lokum. Næst er komið að Ólafi Hauki Tómassyni blaðamanni visir.is en hann tók viðtöl við leikmennina Andra Snæ Stefánsson og Ara Pétursson.Andri Snær: Ég fékk gæsahúð „Þetta er auðvitað afar kærkomin stig og þetta er rosalega gott fyrir liðið. Við erum mjög spenntir fyrir törninni sem er framundan og við mættum rosalega ákveðnir í dag, uppskárum eftir því og þetta er frábært veganesti í törnina sem er framundan,“ sagði Andri Snær Stefánsson, fyrirliði Akureyrar eftir sigur sinna manna í kvöld. Akureyri hefur gengið afar illa í vetur og aðeins unnið tvo leiki og gert eitt jafntefli í þessum tíu leikjum sínum. Oft hefur ekki munað miklu í tapleikjum þeirra og er Andri ánægður með hugarfarið hjá sínum mönnum. „Mér fannst karakterinn sem við sýndum standa upp úr og við erum að sýna frábæran karakter. Það eru pínu mistök inn á milli sem skipta engu máli og við höldum bara áfram. Við höfum verið í svona leikjum áður sem við höfum misst niður og það var karakterinn sem skapaði sigurinn. Við höfðum þor og vorum bara alveg frábærir.“Andri Snær í hraðaupphlaupi, stingur sér framhjá Starra og boltinn lá í netinu
Stemmingin sem Akureyri náði að mynda á vellinum náði að smitast vel í áhorfendur og stemmingin var afar góð og minnti á það sem hefur einkennt KA-heimilið í mörg ár. Það hefur verið langt síðan unnist hefur sigur heimaliðs á Akureyri og telur Andri að þetta sé bara upphafið. „Við erum búnir að fá alltof lítið úr þessum heimavelli. Við vorum allir frekar orkumiklir í dag og það skiptir bara ofboðslega miklu máli að það séu allir með í þessu. Við sýndum frábæra liðsheild sem skilaði sér yfir í fólkið. Það var æðislegt, ég fékk gæsahúð nokkrum sinnum og þetta er það sem koma skal í næstu leikjum,“ sagði Andri Snær kampakátur.Ari: Héldum að þetta væri leikur sem gæti hjálpað okkur „Við vorum ekki að nýta færin okkar. Tomas var að verja einhverja tuttugu bolta eða eitthvað og mér fannst það aðallega ástæðan. Vörnin var að standa fínt en við vorum bara ekki að nýta færin okkar,“ sagði Ari Pétursson leikmaður Stjörnunnar eftir tapið gegn Akureyri í kvöld.Ari Pétursson kominn í færi
Leikmenn Stjörnunnar voru að skjóta frekar illa á köflum, sérstaklega í fyrri hálfleik en þrátt fyrir að Stjörnumenn verði fúlir með leik sinn í dag telur Ari þá hafa staðið sig ágætlega á einu sviði en ekki tekist að láta það telja í kvöld, hann taldi sitt lið hafa skapað vel af fínum færum en gengið illa að klára þau. „Við erum þriðja neðsta liðið og erum ekki sáttir með það og við héldum að þetta gæti orðið leikurinn sem myndi hjálpa okkur að keyra þetta í gang,“ sagði Ari sem var að vonum ekki ánægður með úrslitin í kvöld og er Stjarnan nú komin nær botnbaráttunni eftir tap í mjög mikilvægum leik. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook