Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Langþráður sigur á Valsmönnum - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Bergvi Þór Gíslason með langþráða endurkomu á völlinn

3. febrúar 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar

Langþráður sigur á Valsmönnum

Það er óhætt að segja að það hafi verið rafmagnað andrúmsloft í KA heimilinu í gærkvöldi þegar Akureyri tók á móti Val í fyrsta leik Olís deildar karla á árinu.
Valsmenn hafa haft býsna góð tök á Akureyrarliðinu undanfarin ár, Akureyri náði jafntefli 24-24 þegar liðin mættust hér fyrir norðan í mars 2014, og sömuleiðis lauk leik þeirra í febrúar 2013 með sömu markatölu í Valsheimilinu. Fara þarf allt til 30. mars 2012 til að finna sigurleik gegn Val, raunar vann Akureyri tvo af þrem innbyrðisleikjum liðanna það tímabil og þeim þriðja lauk með jafntefli.

Það var vel mætt á leikinn í gær og greinilegt að fólk kunni að meta að sjá gamalkunnug andlit í leikmannahópnum. Bergvin Þór Gíslason kom inn í hópinn í fyrsta sinn á tímabilinu en þessi besti leikmaður liðsins á síðasta tímabili hefur glímt við erfið meiðsli allt frá því í haust. Þá var þjálfarinn, Sverre Andreas Jakobsson kominn í leikmannabúning albúinn til að koma inná ef á þyrfti að halda.


Sverre tók að sjálfsögðu fullan þátt í leiknum þó hann kæmi ekki inná

Strax í upphafi var ljóst að bæði lið ætluðu ekki að gefa neitt eftir, jafnt var á nánast öllum tölum, Akureyri þó oftast með frumkvæðið. Áðurnefndur Bergvin var í byrjunarliðinu og minnti rækilega á sig, skoraði tvö mörk og fiskaði vítakast.

Það var þó Róbert Sigurðarson sem fór fyrir liði heimamanna, að venju sýndi hann magnaðan varnarleik og tók líka eftirminnilega þátt í sóknarleiknum. Þegar fyrri hálfleikur var rúmlega hálfnaður skoraði Róbert þrjú glæsileg mörk í röð fyrir Akureyri. Þar með var ekki öll sagan sögð því um leið og fyrri hálfleikur rann út fékk Akureyri aukakast út við hliðarlínu í nánast vonlausu færi. Róbert stillti sér upp fyrir framan stæðilegan varnarmúr Valsmanna og sendi boltann á undraverðan hátt framhjá veggnum og beint í netið án þess að Hlynur Morthens kæmi nokkrum vörnum við. Það er ekki að undra að markinu hefur verið líkt við eitt frægasta mark handboltasögunnar sem Guðjón Valur Sigurðsson skoraði hér fyrir sextán árum síðan.


Róbert og Friðrik fagna undramarki Róberts

Með markinu tryggði Róbert Akureyrarliðinu eins marks forystu, 13-12 í hálfleik. Þetta kynnti heldur betur í áhorfendum og Akureyrarliðinu sem tók öll völd á vellinum strax í upphafi seinni hálfleiks. Valsmenn voru þó ekki langt undan. Arnar Þór Fylkisson kom í mark Akureyrar og er óhætt að segja að hann hafi lagt sitt að mörkum með frábærri markvörslu.


Arnar Þór Fylkisson kórónaði stórleik sinn með því að grípa þetta skot

Í stöðunni 17-16 kom frábær leikkafli Akureyrarliðsins sem skoraði sex mörk gegn einu marki Valsmanna, sex marka munur 23-17 og ennþá þrettán mínútur eftir.
Valsmenn áttu fá svör við þeim ham sem Akureyrarliðið var komið í, munurinn varð mest sjö mörk í blálokin 27-20 en Valur átti lokamarkið á síðustu sekúndunum og 27-21 því úrslit leiksins.

Fimm ára bið eftir sigri á Val loksins á enda og gríðarlegur fögnuður innan sem utan vallar. Varnarleikur liðsins var hreint út sagt stórbrotinn allir tilbúnir í hjálparvörn ef á þyrfti að halda. Þá er óhætt að hrósa liðinu fyrir árangursríkan og fjölbreyttan sóknarleik, ekki er ólíklegt að endurkoma Bergvins eigi þar töluverðan þátt.
Það var sanndóma álit manna að Róbert Sigurðarson væri maður leiksins enda með stórleik á báðum endum vallarins.

Mörk Akureyrar: Kristján Orri Jóhannsson 7 (úr vítum), Mindaugas Dumcius 4, Róbert Sigurðarson 4, Bergvin Þór Gíslason 3, Igor Kopyshynskyi 3, Andri Snær Stefánsson 2, Friðrik Svavarsson 2 og Sigþór Árni Heimisson 2.
Tomas Olason varði 8 skot en Arnar Þór Fylkisson stóð vaktina með glæsibrag síðustu tuttugu mínúturnar og varði 9 skot.

Mörk Vals: Orri Freyr Gíslason 5, Sveinn Aron Sveinsson 4, Ólafur Ægir Ólafsson 3, Josip Juric Gric 3, Anton Rúnarsson 2, Heiðar Þór Aðalsteinsson 2, Alexander Örn Júlíusson 1 og Ýmir Örn Gíslason 1.
Hlynur Morthens varði 9 skot og Sigurður Ingiberg Ólafsson 2.

Næsti leikur Akureyrarliðsins er útileikur gegn FH klukkan 16:00 á sunnudaginn og eftir því sem við best vitum verður hann sýndur beint á SportTV. Við munum færa fréttir um hvernig nálgast má þá útsendingu þegar þar að kemur.

Aðrir leikir átjándu umferðarinnar fara fram á mánudagskvöldið og að þeim loknum verður ljóst hvernig leikjaplan liðanna verður í síðasta þriðjungi Olís deildarinnar.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson