Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Viðtöl Einars Sigtryggssonar eftir Valsleikinn - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Róbert og Friðrik Svavarsson fagna marki Róberts

3. febrúar 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar

Viðtöl Einars Sigtryggssonar eftir Valsleikinn

Það var Einar Sigtryggsson, blaðamaður mbl.is sem stóð vaktina á leik Akureyrar og Vals í gærkvöldi og strax að leik loknum tók hann tali mann leiksins, Róbert Sigurðarson og einnig Guðlaug Arnarsson þjálfara Valsliðsins. Viðtöl Einars fara hér á eftir:

Róbert: Sverre kveikti í okkur

Róbert Sigurðarson hefur líklega aldrei spilað jafn vel og í kvöld þegar hann og félagar hans í liði Akureyrar lögðu Val í Olís-deildinni í handknattleik, 27:21.
Róbert var tveggja manna maki í vörn liðsins en hann tók svo til við markaskorun þær fáu mínútur sem hann fékk að beita sér í sókninni. Til að setja smá krydd á frammistöðuna skoraði Róbert ótrúlega flott mark úr aukakasti eftir að leiktími fyrri hálfleiks var liðinn.
Róbert var spurður um frammistöðuna.
„Ég er búinn að bíða mjög lengi eftir þessum leik, alveg frá því í desember. Við fórum í jólafrí með skelfilegt tap á bakinu og ég er búinn að hugsa um þennan leik síðan þá. Tapið gegn Fram í lokaleiknum fyrir jól sat lengi í mér og ég undirbjó mig mjög vel fyrir þennan leik. Sverre var ekkert að breyta neinum áherslum í varnarleiknum. Við héldum bara áfram með það sem gekk vel hjá okkur fyrir áramót. Nú vorum við að vinna betur saman og allt gekk 100% upp. Við náðum allir mjög vel saman og það var gaman að spila vörnina,“ sagði Róbert við mbl.is.

Nú var Sverre sjálfur kominn á bekkinn, tilbúinn að koma inn í vörnina. Setti það pressu á ykkur hina?
„Nei, það var engin pressa en þetta kveikti í manni. Við ungu strákarnir vildum ekkert vera að hleypa honum inná. Við vorum bara að gera þetta vel og hann þurfti ekkert að grípa inní. Það skipti líka miklu máli að við létum ekki reka okkur útaf, þar sem við unnum svo vel saman. Segjandi það þá verð ég að hrósa dómurunum í leiknum. Þeir voru mjög sanngjarnir og virtu það við okkur að við vorum ekkert að böggast í þeim. Það hjálpar alltaf að vera jákvæður og leyfa þeim að sinna sínu.“

Og næsti leikur?
„Það er útileikur gegn FH á sunnudaginn. Við höfum spilað tvo svakalega leiki við þá í vetur og þetta verður örugglega alvöru leikur,“ sagði Róbert að skilnaði.

Róbert Sigurðarson átti sannkallaðan stórleik og var valinn maður Akureyrarliðsins

Guðlaugur: Við vorum agalausir

Guðlaugur Arnarsson, þjálfari Vals, mátti sætta sig við tap í kvöld þegar Akureyringar lögðu lið hans í Olís-deildinni í handbolta. Valsmenn hafa verið áskrifendur að sigri á Akureyri síðustu árin en heimamenn voru nokkuð betri í kvöld og unnu 27:21. Guðlaugur sagði þetta um leikinn:
„Akureyringarnir voru með hjartað í þennan leik. Þeir mættu vel gíraðir og börðust eins og ljón. Þeir verðskulduðu þennan sigur. Við vorum búnir að undirbúa okkur fyrir mikla baráttu og í sjálfu sér kom ekkert á óvart í leik þeirra. Varnarleikurinn hjá þeim var mjög þéttur og svo kom markvarslan með. Við hinsvegar vorum agalausir og ekki nógu góðir í vörninni. Það vantaði okkar helsta vopn sem er leikgleði og áræðni. Þegar það vantar þá eru allir leikir erfiðir,“ sagði Guðlaugur við mbl.is.

Nú hefur Hlynur Morthens verði að ganga frá Akureyringum síðustu ár. Hann varði nokkuð vel en ekki eins og oftast.
„Hann stóð fyrir sínu. Vörnin var hins vegar ekki nógu öflug og það hjálpaði honum ekki. Menn voru ekki að standa sína plikt og einbeitingu vantaði. Það verður að lagast fyrir næstu leiki. Það er stutt á milli leikja núna og nóg framundan.“

Þið lentuð sex mörkum undir, minnkuðuð strax muninn í fjögur mörk og fenguð nokkrar sóknir til að nálgast þá meira. Það gekk hins vegar ekki.
„Já, þá bara klikkuðum við á nokkrum góðum færum. Markvörðurinn varði bara frá okkur. Við áttum líka í brasi með að minnka muninn áður en þetta fór í sex mörk. Við vorum einfaldlega að klúðra færunum okkar og þeir gengu á lagið,“ sagði Guðlaugur Arnarsson.

Guðlaugur kíkir á leikklukkuna í veikri von um að enn sé tími til að klóra í bakkann

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson