Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Róbert hefur verið feykiöflugur jafnt í vörn sem sókn22. febrúar 2017 - Akureyri handboltafélag skrifarRóbert Sigurðarson í eins leiks bann Aganefnd HSÍ hefur úrskurðað Róbert Sigurðarson, leikmann Akureyrar í eins leiks bann. Ástæðan er að í síðasta leik gegn Gróttu fékk Róbert að líta rauða spjaldið sem á fagmálinu heitir að hann hafi fengið útilokun án skýrslu. Þetta var í þriðja sinn á tímabilinu sem það gerist og samkvæmt 11. grein reglugerðar um agamál fylgir því eins leiks bann. Róbert verður því í banni í næsta leik Akureyrar sem er heimaleikur gegn Aftureldingu fimmtudaginn 2. mars næstkomandi. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook