Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Erfið byrjun kostaði sætið í úrslitunum21. febrúar 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur úr leik eftir tap á Hlíðarenda 2. flokkur Akureyrar mætti í dag liði Vals í undanúrslitum Bikarkeppni 2. flokks en leikið var á Hlíðarenda. Fyrirfram mátti búast við hörkuleik enda höfðu liðin mæst í hörkuleikjum fyrr í vetur þar sem Akureyrarliðið hafði farið með sigur af hólmi. En heimamenn mættu mun betur stemmdir til leiks og með öflugri vörn skoraði Valsliðið fyrstu 4 mörk leiksins og ekki leið á löngu uns þeir náðu góðu haldi á leiknum. Lítið gekk hjá okkar strákum í sókninni og hálfleikstölur voru 13-5 fyrir Val. Akureyrarliðið reyndi hvað það gat til að koma sér aftur inn í leikinn í síðari hálfleik en því miður þá hafa Valsmenn einfaldlega yfir það sterku liði að skipa að þeir héldu forskotinu og unnu að lokum 25-18. Mjög svekkjandi niðurstaða enda eiga strákarnir mikið inni og er munurinn á liðunum klárlega ekki svona mikill, bikardraumurinn er því úti í ár. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook