Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Komast strákarnir í Höllina?21. febrúar 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar2. fl. Bikarslagur Vals og Akureyrar - ekki í beinni Því miður urðum við að hætta að sýna frá leiknum þar sem netsambandið í Valshöllinni sveik okkur og útsendingin stoppaði hvað eftir annað. Útsendingin stoppaði endanlega eftir u.þ.b. fimm mínútur í seinni hálfleik en þá var staðan 14-7 fyrir Val. Leiknum er nú lokið og lauk með 25-18 sigri Vals sem tryggði sér þar með þátttöku í bikarúrslitaleiknum um næstu helgi. Valur og Akureyri mætast í undanúrslitum bikarkeppni 2. flokks í Valsheimilinu í dag klukkan 17:40 og má búast við hörkuleik enda sæti í sjálfum úrslitaleiknum í Laugardalshöllinni í húfi. Þó nokkur hasar hefur verið á milli félaganna fyrir þennan leik og verður virkilega áhugavert að fylgjast með þessum stórslag. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook