Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Geir Aðalsteinsson hefur náð frábærum árgangri með liðið










4. janúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Upprifjun ársins 2008 - annarflokkur

Hér á eftir verður stiklað á stóru um gang mála hjá öðrum flokki Akureyrar Handboltafélags á árinu. Geir Aðalsteinsson var ráðinn þjálfari liðsins fyrir tímabilið 2007-2008 og byrjuðu strákarnir með stæl með tveim útisigrum í nóvember 2007. Leikjum strákanna var svo ítrekað frestað þannig að fyrir áramót fengu þeir einungis fjóra deildarleiki og einn bikarleik þannig að það varð nóg að gera á árinu 2008.

Strákarnir léku til úrslita í bikarkeppninni gegn HK en á leiðinni höfðu þeir slegið út FH, Val og Víking. Úrslitaleikurinn varð bráðfjörugur en HK fór með nokkuð öruggan sigur af hólmi.

Íslandsmótið var leikið í tveimur riðlum og voru Akureyrarstrákar í Norður riðli. Eftir harðan slag náðu strákarnir 2. sætinu í riðlinum sem gaf þeim heimaleikjarétt gegn Haukum sem lentu í 3.sæti suðurriðilsins. Í fjögurra liða úrslitunum fengu þeir FH sem varð efst í suðurriðlinum og strákarnir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu hið öfluga lið FH sem skömmu áður hafði orðið deildarmeistari og þar með var Akureyri komið í úrslitaleikinn gegn erkifjendunum í HK. Strákarnir fóru illa að ráði sínu í úrslitaleiknum, byrjuðu illa en að lokum fór HK með sigur 32-29 og silfurverðlaunin þar með staðreynd.

Það verður að teljast frábær árangur hjá strákunum að fá silfurverðlaunum í báðum stórmótunum þó að vissulega hafi verið súrt að horfa á HK taka báðar dollurnar en hér fer á eftir yfirlit yfir alla leiki liðsins á fyrri hluta ársins.

2. flokkur karla úrslit leikja 2007-2008
Fim. 1. maí 2008
16:00HK - Akureyri32-292.fl.kk ÚrslitSeltjarnarnes
Mið. 30. apríl 2008
20:00FH - Akureyri27-29 2.fl.kk 4-liða úrslitSeltjarnarnes
Mán. 28. apríl 2008
17:45Akureyri - Haukar29-24 2.fl.kk 8-liða úrslitSíðuskóli
Þri. 22. apríl 2008
17:00Akureyri - Grótta33-19 2.fl.kk Norður riðillÍþróttahöllin
Lau. 12. apríl 2008
13:30Akureyri - HK30-27 2.fl.kk Norður riðillSíðuskóli
Sun. 6. apríl 2008
15:00Akureyri - Valur26-272.fl.kk Norður riðillKA heimilið
Sun. 30. mars 2008
11:00Akureyri - Víkingur34-22 2.fl.kk Norður riðillKA heimilið
17:00Akureyri - Víkingur36-27 2.fl.kk Norður riðillKA heimilið
Sun. 9. mars 2008
12:30Valur - Akureyri31-37 2.fl.kk Norður riðillVodafone höllin
Lau. 8. mars 2008
13:00Grótta - Akureyri22-36 2.fl.kk Norður riðillVodafone höllin
Fös. 7. mars 2008
19:00Grótta - Akureyri21-40 2.fl.kk Norður riðillSeltjarnarnes
Sun. 2. mars 2008
15:00Akureyri - HK30-32 2.fl.kk BikarLaugardalshöll
Mið. 27. febrúar 2008
18:00Akureyri - Víkingur41-31 2.fl.kk BikarkeppninKA Heimilið
Sun. 24. febrúar 2008
11:00Valur - Akureyri32-302.fl.kk Norður riðillVodafone höllin
Lau. 23. febrúar 2008
12:15HK - Akureyri26-252.fl.kk Norður riðillDigranes
Þri. 5. febrúar 2008
17:00Valur - Akureyri28-33 Bikark. 2.fl.karlaVodafone höllin
Fös. 1. febrúar 2008
21:00Víkingur - Akureyri34-37 2.fl.kk Norður riðillVíkin


Leiktímabilið 2008-2009

Geir Aðalsteinsson þjálfar liðið áfram, eins og vant er ganga alltaf einhverjir leikmenn upp úr flokknum en aðrir koma inn í staðinn. Ásbjörn Friðriksson gekk til lið við FH og Sveinbjörn Pétursson markvörður til HK. Hins vegar kom Anton Rúnarsson til liðsins frá Val þegar nokkuð var liðið á tímabilið. Liðið í ár er feikisterkt, hópurinn mjög breiður og ákaflega samstilltur. Nokkrir leikmanna leika einnig stórt hlutverk með meistaraflokknum á meðan aðrir eru reglulega kallaðir til í meistaraflokkshópinn. Það sem helst vantar eru fleiri æfingatímar fyrir liðið en þeir eru í raun ótrúlega fáir.

Liðið hefur farið ákaflega vel af stað á þessu tímabili eins og sést best á eftirfarandi yfirliti leikjanna.

2. flokkur karla úrslit leikja tímabilið 2008-2009
Fim. 18.des.2008
18.15Akureyri - Fram39-25 2.fl.kk ÍslandsmótSíðuskóli
Mán. 15.des.2008
17.30Akureyri - Stjarnan36-34 2.fl.kk EimskipsbikarSíðuskóli
Lau. 13.des.2008
13.30Akureyri - ÍR39-24 2.fl.kk ÍslandsmótÍþróttahöllin
Lau. 6.des.2008
13.00Selfoss - Akureyri33-34 2.fl.kk Íslandsmót
Fös. 5.des.2008
20.15Afturelding - Akureyri23-35 2.fl.kk ÍslandsmótVarmá
Lau. 15.nóv.2008
14.00HK - Akureyri30-31 2.fl.kk ÍslandsmótDigranes
Fös. 14.nóv.2008
20.00Fjölnir - Akureyri21-47 2.fl.kk ÍslandsmótÍM Grafarvogi
Lau. 25.okt.2008
14.00Valur - Akureyri27-32 2.fl.kk ÍslandsmótVodafone höllin
Fös. 24.okt.2008
20.20Haukar - Akureyri26-29 2.fl.kk ÍslandsmótÁsvellir
Sun. 19.okt.2008
15.15Akureyri - Afturelding40-20 2.fl.kk ÍslandsmótKA heimilið


Staðan á Íslandsmótinu í lok ársins er sem hér segir:

Nr.FélagLeikUJTMörkNettStig
1.Akureyri9900325:2289718
2.FH8701287:2078014
3.ÍR9603259:2431612
4.Valur7421220:1952510
5.Afturelding10415265:293-289
6.Haukar9243250:24378
7.Fram10406287:303-168
8.Víkingur8314228:208207
9.HK9315281:27567
10.Selfoss7304217:20896
11.Stjarnan7214198:207-95
12.Fjölnir110011213:420-2070


Eins og hér sést er árangur liðsins það sem af er árinu aldeilis frábær, sigur í öllum leikjum og liðið í efsta sæti Íslandsmótsins og komið í 8-liða úrslit bikarkeppninnar þar sem liðið fékk útileik gegn Fram í næstu umferð.

Liðið á þó enn eftir að leika við tvö lið í deildinni, Víking og FH. Allt útlit er fyrir að höfuðandstæðingarnir verði FH sem eru með geysiöflugt lið sem er að miklu leyti strákarnir sem halda uppi meistaraflokki liðsins og verður fróðlegt að sjá hvernig þeim viðureignum lyktar.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson