Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Alltaf gaman að skoða gamlar myndir

31. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Gullmoli úr fornminjasafninu

Alltaf af og til rekst maður á ýmsa gullmola þegar verið er að taka til í gömlu dóti. Á árunum 1993 og 1994 gaf HSÍ út myndaspjöld af leikmönnum sem þá voru í eldlínunni og gengu þær undir nafninu Mark-myndir. Auk myndar af viðkomandi leikmanni voru upplýsingar um fæðingardag, hæð og þyngd, landsleikjafjölda og áhugamál. Okkur hafa áskotnast tvö slík spjöld og birtum við annað þeirra í dag.

Gullmoli dagsins er frá 1993 og er enginn annar en þjálfari Akureyrar Handboltafélags, Rúnar Sigtryggsson. Á þessum tíma var Rúnar í herbúðum Vals og samkvæmt upplýsingum á spjaldinu var hann þá 193 cm á hæð og 88 kg á þyngd, hafði leikið 2 landsleiki, 10 leiki með U21-landsliðinu og 3 leiki með U18 landsliðinu. Þá gefur Rúnar upp að helstu áhugamál hans séu íþróttir og ferðalög.


Hefur hann eitthvað breyst á þessum 15 árum?

Þeir sem luma á skemmtilegu myndefni sem tengist Akureyri Handboltafélagi á einhvern hátt ættu endilega að hafa samband og við reynum að koma því á framfæri.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson