Akureyri mætir í Garðabæinn á mánudaginn og mætir þar liði Stjörnunnar í 16-liða úrslitum Coca-Cola bikarsins. Stjarnan er í fyrsta sæti 1. deildar og má reikna með hörkuleik enda sæti í 8-liða úrslitunum í húfi. Síðast þegar liðin mættust í bikarnum unnu Stjörnumenn óvæntan sigur en það var í undanúrslitum keppninnar árið 2013. Stjarnan lék eins og núna í 1. deildinni og með öguðum leik tókst þeim að landa 24-26 sigri og tryggja sér sæti í úrslitaleiknum. Nú er bara að vona að þetta endurtaki sig ekki á mánudaginn.Stjarnan féll úr efstu deild síðasta vor en er sem stendur í efsta sæti 1. deildar eftir tíu umferðir, töpuðu raunar fyrir Selfyssingum 32 - 24 en hafa unnið hina níu leikina býsna örugglega. Atkvæðamestu menn Stjörnunnar eru Starri Friðriksson og Andri Hjartar Grétarsson með 50 skoruð mörk hvor. En þjálfari liðsins er Einar Jónsson, fyrrum þjálfari Fram en er í dag aðstoðarþjálfari íslenska kvennalandsliðsins. Akureyri og Stjarnan mættust þrisvar á síðasta tímabili, Akureyri vann tvisvar á heimavelli en leiknum í Garðabæ lauk með jafntefli.
Heiðar Þór og Andri Hjartar Grétarsson eigast hér við í fyrri heimaleiknum í fyrra
Það leit raunar ekki vel út á tímabili í fyrri heimaleiknum, Stjarnan hafði leitt allan leikinn og meðal annars verið 6 mörkum yfir í síðari hálfleik. Frábær endurkoma Akureyrar hinsvegar í lokin sneri leiknum við og á endanum vannst 31-27 sigur. Hér má sjá síðustu einu og hálfu mínútuna í leik Akureyrar og Stjörnunnar þann 25. september 2014.VIDEO
Stjarnan hefur sem sé gert Akureyri lífið leitt og verða þeir leikir Akureyrarliðinu vonandi víti til varnaðar, það má búast við alvöru leik á mánudagskvöldið þar sem verður hart barist enda sæti í 8-liða úrslitunum í boði, áfram Akureyri!