Kristján verður í eldlínunni gegn Fjölni á laugardaginn
| | 3. mars 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar1. deild karla: Akureyri U - Fjölnir á laugardaginnÞað er óhætt að segja að Ungmennalið Akureyrar fái verðugan andstæðing á laugardaginn þegar þeir taka á móti toppliði deildarinnar, Fjölni sem enn hefur ekki tapað stigi í deildinni.
Leikurinn verður í Íþróttahöllinni og hefst klukkan 14:00. Eins og jafnan áður þá er frítt inn á leikinn þannig að við hvetjum alla stuðningsmenn strákanna til að fjölmenna á leikinn.
|