Valdi er mikilvægur hlekkur í liði Akureyrar
| | 7. september 2006 - ÁS og SÁ skrifarÞorvaldur framlengir samning sinnÞorvaldur Þorvaldsson, línumaður og hið mikla varnartröll, er búinn að framlengja samning sinn við Akureyri Handboltafélag. Valdi hefur síðastliðin ár verið gríðarlega mikilvægur í liði KA, þá aðallega sem varnarmaður en það er hans sterkasta hlið. Þá hefur hann oft leyst sóknarhlutverkið afar vel af hendi. Samningurinn er til tveggja ára en þó uppsegjanlegur eftir núverandi tímabil.
Heimasíðan fagnar samningnum og óskar bæði Valda og liðinu til hamingju með samninginn. |