Nóg að gera hjá þeim á næstunni
| | 20. desember 2006 - SH skrifarAigars og Alex í undankeppni EMLettarnir í liði Akureyrar, Aigars Lazdins og Alex Kuzmins, verða báðir í eldlínunni með landsliði Lettlands í janúar. Þá fara fram undanriðlar fyrir næstu Evrópukeppni þar sem Lettar mæta Georgíumönnum, Búlgörum og Rúmenum í 3. riðli undankeppninnar en öll liðin mætast tvívegis, heima og að heiman. Þeir fóru báðir til utan á þriðjudagsmorgun til æfinga með landsliðinu. Fyrsti leikurinn er strax í byrjun janúar en sá síðasti, í Rúmeníu, 21. janúar. Þeir koma svo aftur til Akureyrar 24. janúar. Þess má geta að Nikolaj Jankovic fór einnig utan á þriðjudaginn - í frí heim til sín í Belgrad, höfuðborg Serbíu. |