Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Hvernig mun Sveinbirni ganga í Noregi?



25. maí 2007 - ÁS skrifar 

Sveinbjörn farinn til Noregs, fyrstu leikir á morgun

Sveinbjörn Pétursson markvörðurinn knái í Akureyri Handboltafélagi var á dögunum valinn í U-19 ára landslið Íslands. Liðið fór í gær út til Noregs þar sem það mun taka þátt í Norðurlandamóti. Mótið hefst í dag með leik milli Norðmanna og Finna og einnig með leik Svía og Dana. Íslenska liðið hefur leik á morgun með því að leika við Finna og seinna um daginn leikur Ísland við Norðmenn. Þjálfari liðsins er Heimir Ríkarðsson, leikjaplan mótsins er eftirfarandi (þetta er íslenskur tími):

Föstudagur
Noregur - Finnland (kl. 15:00)
Svíþjóð - Danmörk (kl. 17:00)

Laugardagur
Finnland - Ísland (kl. 10:00)
Svíþjóð - Noregur (kl. 12:00)
Danmörk - Finnland (kl. 14:00)
Ísland - Noregur (kl. 16:00)

Sunnudagur
Ísland - Danmörk (kl. 8:00)
Finnland - Svíþjóð (kl. 10:00)
Noregur - Danmörk (12:00)
Svíþjóð - Ísland (14:00)

Ég bendi aftur á að þetta er íslenskur tími sem er hér gefinn upp. Heimasíðan óskar Sveinbirni og liðsfélögum hans góðs gengis á Norðurlandamótinu. Heimasíðan mun koma með fréttir af gengi liðsins eins fljótt og unnt er.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson