Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Tveir leikir samdægurs hjá Emelíu

28. febrúar 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Meistaraflokkur kvenna - tap gegn Val

Þær fréttir voru að berast að meistaraflokkur kvenna hefði tapað útileik gegn Val í Vodafone höllinni með sextán marka mun 38-22. Valur hafði yfirhöndina allan leikinn og leiddi 18-12 í hálfleik. Í seinni hálfleik hélt Valur áfram að auka við forystu sína jafnt og þétt. Það fór að lokum svo að Valur vann Akureyri örugglega 38-22.

Mörk Akureyrar skoruðu:

Ester Óskarsdóttir 6, Auður Ómarsdóttir 4, Inga Dís Sigurðardóttir 4, Anna Teresa Morales 3, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 2, Jóhanna Tryggvadóttir 1, Lilja Þórisdóttir 1 og Monika Rutkowska 1.

Þennan leik átti upphaflega að leika þann 16. febrúar en var þá frestað. Það er dálítið merkilegt að þessi leikur er leikinn strax í kjölfarið á leik unglingaflokks kvenna en stór hluti stelpnanna leikur í báðum flokkum þannig að þær fengu ekki mikla hvíld fyrir meistaraflokksleikinn sem skýrir hugsanlega stórt tap gegn Val.

Það má rifja það upp hér að fyrr í vetur neitaði Valur að láta 2. flokk karla spila gegn Akureyri þar sem einn leikmaður var í hópi hjá meistaraflokki þann sama dag, ekki sama Jón og séra Jón eða hvað?
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson