Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Hödda leiddist ekki á línunni gegn ÍBV

10. maí 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Öruggur sigur karlaliðsins á ÍBV

Karlalið Akureyrar vann öruggan sigur á Vestmannaeyingum í lokaleik sínum í N1 deildinni sl. laugardag. Leikmönnum Akureyrar gekk þó ekkert alltof vel að slíta sig frá Eyjamönnum framan af leik og höfðu aðeins eins marks forystu í hálfleik 18-17. Friðrik Sigmarsson markvörður Eyjamanna var að verja mjög vel og kunni greinilega vel við sig í KA heimilinu eins og karl faðir hans hér á árum áður (Sigmar Þröstur Óskarsson).

Í síðari hálfleik sýndu leikmenn Akureyrar hins vegar yfirburði sína og völtuðu yfir gestina þannig að lokatölur urðu 42-33.

Ásbjörn Friðriksson var sérstaklega iðinn við kolann í markaskoruninni og skoraði 11 mörk, Andri Snær skoraði 8, Nikolaj 7, Heiðar Þór 5, Björn Óli og Hörður Fannar 4 mörk hvor, Goran, Jónatan og Þorvaldur 1 mark hver.

Sveinbjörn stóð vaktina í markinu í fyrri hálfleik og varði 11 skot. Gleðilegt að hann virðist vera að ná sér af meiðslum en maður átti ekki von á því að hann næði bata fyrir lok leiktíðarinnar.
Elmar Kristjánsson kom í markið í síðari hálfleik og var smástund að finna sig en datt fljótlega í banastuð og átti stórgóðan leik með 12 skot varin.

Hér er hægt að skoða myndir Þóris Tryggvasonar frá leiknum.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson