Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Nú þurfa strákarnir að sýna hvort þeir eru menn eða mýs

16. febrúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Bikarslagur á morgun gegn Selfyssingum

Á morgun, þriðjudag er komið að alvöruleik hjá strákunum í 2. flokki en þá taka þeir á móti Selfyssingum í 4-liða úrslitum bikarkeppninnar. Ef Akureyrarstrákar fara með sigur af hólmi í leiknum mæta þeir HK í úrslitaleik bikarsins en þessi sömu lið léku einmitt til úrslita fyrir ári síðan og því tækifæri til að hefna fyrir úrslitin þá.

En fyrst þarf að klára leikinn á morgun og ljóst að strákarnir verða að mæta einbeittir til leiks enda Selfyssingar með geysilega öflugt lið sem hefur verið að klifra upp deildina í síðustu leikjum eftir brösótta byrjun en nú situr lið þeirra í 3. sætinu á eftir Akureyri og FH.

Leikurinn verður í íþróttahúsi Síðuskóla og hefst klukkan 17:30. Akureyrarliðið hefur fundið sig ákaflega vel á fjölum Síðuskólahússins og ekki tapað þar leik og nú heitum við á alla leggja sitt af mörkum til að sú sigurganga haldi áfram.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson