Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Strákarnir lofa hörkuleik á mánudagskvöldið
25. apríl 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
Akureyri – Valur: viðtöl eftir leikinn í gær
Andri Yrkill Valsson blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við leikmenn eftir slaginn í gærkvöldi. Skoðum fyrst hvað
Heimir Örn Árnason
hafði að segja:
„Við vorum alls ekki nægilega klókir“
„ Við vorum alls ekki nægilega klókir. Þegar við leikmenn í gærkvöldi vorum með fullskipað lið þá náðum við alltaf að komast inn í leikinn, en svo létum við reka okkur útaf og það var of dýrt,“ sagði Heimir Örn Árnason, leikmaður Akureyrar eftir 31:25 tap liðsins gegn Val í undanúrslitum N1-deildar karla í kvöld. Staðan er jöfn 1:1 og úrslitin ráðast í oddaleik á mánudag á heimavelli Vals.
„Valsmenn eru engir nýgræðingar. Þær vældu alveg frá fyrstu mínútu og græddu vel á því. Við fengum alveg fáránlega margar brottvísanir og við vorum oft miklir klaufar. Oddaleikurinn verður mjög jafn, við unnum þá örugglega síðast og þeir unnu okkur örugglega núna, svo það er kominn tími á jafnan leik.“
Oddur Gretarsson ræddi einnig við Andra Yrkil
„Þetta er engan veginn búið“
„Þetta er engan veginn búið,“ sagði Oddur Gretarsson, leikmaður Akureyrar, en hann fór fyrir sínum mönnum og skoraði 8 mörk. Hann var ósáttur við hversu margar brottvísanir lið hans fékk í leiknum.
„Við fengum of mikið af óþarfa brottvísunum og þess vegna náðum við ekki að fylgja eftir þegar við náðum góðum köflum í leiknum. Við vorum líka óheppnir þar sem við misstum boltann oft af algjörum klaufaskap og það datt ekkert með okkur. Við þurftum að elta þá allan leikinn og það var bara of erfitt. En við ætlum að klára þetta í oddaleiknum, það er engin spurning.“
Andri Yrkill ræddi einnig við nokkra leikmenn Vals sem voru að sjálfsögðu brosmildir eftir leikinn.
„Þetta var alveg ekta leikur á milli þessara liða,“ sagði
Arnór Þór Gunnarsson
, leikmaður Vals, en hann skoraði níu mörk í undanúrslita leiknum gegn Akureyri í N1-deild karla í kvöld.
„ Baráttan var í fyrirrúmi, menn slógust og þetta er bara gaman. Við komum alveg brjálaðir til leiks eftir að hafa spilað mjög illa í síðasta leik og við ætluðum okkur ekkert nema sigur. Valsarar mega svo sannarlega fjölmenna á næsta leik þar sem við munum spila mikið betur en í síðasta heimaleik.“
Fannar Þór Friðgeirsson
var sammála liðsfélaga sínum, en hann skoraði einnig níu mörk í leiknum. „Þetta var skemmtilegur leikur, harkan var mikil og stemningin ennþá meiri. Við vorum hundfúlir eftir síðasta leik þar sem við spiluðum mjög illa og við sögðum að við gætum ekki gert verr en það. Við ætluðum að tryggja okkur oddaleik, það tókst og nú ætlum við alla leið í úrslitin.“
„Við sýndum mikinn karakter. Ef við ætlum okkur að verða meistarar þá verðum við að spila alla leiki á þennan hátt,“ sagði
Sigfús Sigurðsson
, leikmaður Vals eftir 31:25 sigur liðsins gegn Akureyri í undanúrslitum N1-deildar karla í handknattleik í kvöld.
Hann sagði baráttuna sem einkenndi leikinn gera handboltann enn skemmtilegri. „Það er alltaf gaman að koma hingað norður að spila. Baráttan er í fyrirrúmi, við lemjum hvorn annan á línunni svo þetta er bara gaman. Svona á handbolti að vera, þetta er ekki eintómt flæði fram og til baka. Í svona leikum er það baráttan um að komast í úrslitin sem ræður. Liðið sem hefur meiri vilja, er þéttari og spila af meiri liðsheild vinnur, og það vorum við í dag.“
Jónatan Magnússon var í viðtali hjá Hjalta Þór Hreinssyni á Fréttablaðinu og var ósáttur við framgöngu dómaranna í leiknum:
Liðin eiga að vera á núlli hjá dómurunum þegar leikurinn byrjar
Jónatan Magnússon, fyrirliði Akureyrar, var ómyrkur í máli eftir tapið gegn Val í kvöld. Hann gagnrýnir dómara leiksins harkalega.
Akureyringar fengu átta brottvísanir í leiknum og Valsmenn sex. Leikurinn var mjög harður og spennustigið hátt.
„Þegar dómarar segja við okkur eftir leikinn að við höfum ekki verið að spila handbolta í fyrri hálfleik, hvað segir það? Það er í fyrsta lagi rangt, eina rauða spjaldið fengu Valsmenn. Þetta er lýsandi dæmi um að þeir mæta inn með fyrirfram ákveðnar hugmyndir.
„Liðin eiga að vera á núlli þegar leikurinn byrjar. Núna eru þeir búnir að smitast af umræðunni að við spilum fast og þetta erbara lýsandi dæmi fyrir þá. Við spiluðum fast, allt í góðu með það, og þeir reka útaf í fyrstu sókn. Það er í fyrsta sinn í vetur sem það gerist.
Og af hverju? Af því þeir hafa hlustað á umræðuna eftir leiki, hlustað á Óskar (Bjarna Óskarsson, þjálfara Vals,innsk), þar sem hann er að tala um alla 50/50 dóma sem við fáum, segir hann, af því við erum á heimavelli.
Ég tek samt ekkert af Völsurum, þeir voru að spila betur en við. Við áttum í vandræðum með að skora.
En þetta finnst mér vera algjör skandall, að liðin séu ekki á núlli þegar leikurinn byrjar.“
En hvað um spilamennsku liðsins? „Hún var klárlega ekki góð. Við vorum bara slakir. Það voru alltof margir í liðinu sem voru lélegir. Þetta er í fyrsta skipti í vetur sem við fáum ekki þá markvörslu sem við erum vanir. Það var vinnsla í vörninni og hún var það besta af þessu þremur, markvörslu vörn og sókn.
„Við grófum okkur smá holu og það er ekki alltaf hægt að reikna með að við komumst upp úr henni. Við settum pressu á þá, en þá komu að sjálfsögðu tvær mínútur. Við fengum of margar slíkar á okkur.“
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson