Bjarni fer inn úr hægra horninu en hefur einnig farið á kostum sem hægri skytta!
| | 12. apríl 2011 - Akureyri handboltafélag skrifarBjarni í úrvalsliði 15.-21. umferðar N1 deildarinnar Í hádeginu í dag var tilkynnt um val á leikmönnum 15.-22. umferðar N1 deildarinnar. Það eru þjálfarar liðanna ásamt valnefnd sem hafa atkvæðisrétt í þessu vali. Að þessu sinni er Bjarni Fritzson í hópnum en hann er valinn besti hægri hornamaðurinn og er þetta í annað sinn sem Bjarni er valinn en hann var einnig valinn bestur í fyrstu sjö umferðunum. Að öðru leiti er úrvalslið umferðanna sem hér segir:
Markvörður: Hlynur Morthens, Val Vinstra horn: Bjarki Már Elísson, HK Vinstri skytta: Ólafur Guðmundsson, FH Miðjumaður: Ásbjörn Friðriksson, FH Hægri skytta: Ernir Hrafn Arnarson, Val Hægra horn: Bjarni Fritzson, Akureyri Línumaður: Orri Freyr Gíslason, Val
Ásbjörn Friðriksson var þar að auki valinn besti leikmaður umferðanna en hann hefur svo sannarlega verið maðurinn á bak við velgengni FH liðsins í vetur þó að honum hafi ekki alltaf verið hampað sem skyldi.
Aðrar viðurkenningar voru þessar:
Besti þjálfarinn: Kristján Arason og Einar Andri Einarsson, FH Besti varnarmaðurinn: Sigurgeir Árni Ægisson, FH Besta umgjörðin: FH Bestu dómarar: Gísli Hlynur Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson
Við óskum öllum þessum til hamingju með sínar viðurkenningar. Bjarni Fritzson og Ásbjörn Friðriksson áttust við í Höllinni í bikarkeppninni
|