Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það verður gríðarleg barátta í Kaplakrikanum í kvöld

17. apríl 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: FH - Akureyri í beinni á SportTV.is

Það er runninn upp leikdagur og það enginn venjulegur leikdagur. Fyrsti leikur undanúrslitaeinvígis Akureyrar og FH hefst klukkan 19:00 í kvöld, næsti leikur verður síðan hér í Íþróttahöllinni á föstudaginn klukkan 20:00.

Í Vikudegi í dag er stutt viðtal við Heimi Örn Árnason um einvígið: „Þetta verður gríðarlega barátta. Ég á marga góða félaga í FH og veit jafnvel og þeir að þetta verður 50-50 rimma,“ segir Heimir Örn. „Ég ætla að vona að þetta verði jafn skemmtilegt í Kaplakrika og í fyrra. Það var frábær umgjörð en þessi tvö lið eiga langbestu umgjörðina á heimavelli þegar þau taka sig til,“ segir hann. FH og Akureyri mættust í úrslitum í fyrra og þar hafði FH betur, 3-1. „Við eigum harma að hefna og ætlum okkur áfram. Ég tel að það séu helmingslíkur á að það takist.“

Í sama streng tekur Bjarni Fritzson: „Ég er gríðarlega spenntur og reikna með frábæru einvígi,“ segir Bjarni. „Þetta eru hnífjöfn lið og ég held að þetta fari í fimmta leik og að það muni einu marki á liðunum í þeim leik. Svo jafnt verður þetta. Auðvitað hefði maður viljað hafa heimaleikjaréttinn. Við eigum frábæra stuðningsmenn en við verðum að taka einn leik á útivelli og það er bara verkefni fyrir okkur að vinna,“ sagði Bjarni Fritzson.

SportTV.is sýnir leikinn beint
Samkvæmt upplýsingum á vef SportTV ætla þeir að sýna leikinn beint á vefnum, og munum við gera okkar besta til að láta útsendingu þeirra birtast hér á síðunni.

Einnig er hægt að smella hér til að fara á síðu SportTV.is.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson