Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Hvernig gengur í dag?17. ágúst 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarLaugardagsleikurinn: Akureyri gegn Dessau Rosslauer Í gær fóru fram fyrstu leikir í riðlakeppninni á Der Handball Champions Cup í Þýskalandi. Í A-riðli urðu úrslit líkt og við mátti búast, Akureyri beið lægri hlut fyrir slóvensku meisturunum í Gorenje lokatölur urðu 25-37 en við bíðum eftir frekari upplýsingum um leikinn. Í hinum leik A-riðilsins vann 1. deildarlið Gummersbach 3. deildarlið Dessau-Rosslauer með 41 marki gegn29. Klukkan 14:00 í dag að íslenskum tíma (16:00 að þýskum) leika því Akureyri og Dessau-Rosslauer. Tveim tímum þar á eftir leika Gorenje og Gummersbach. Báðir þessir leikir fara fram í bænum Wittenberg. Í B-riðli urðu hins vegar óvænt úrslit þar sem 2. deildar liðið DHFK Handball Leipzig sigraði 1. deildarliðið HSG Wetzlar eftir vítakeppni 32-31 en jafnt var eftir venjulegan leiktíma 29-29. Í hinum leiknum sigraði Dinamo Minsk franska liðið Saint-Raphaël en markatalan liggur ekki fyrir á heimasíðu mótsins. Það þýðir að í dag leika innbyrðis tapliðin, HSG Wetzlar og Saint Raphaël annarsvegar og hins vegar sigurliðin DHFK Handball Leipzig og Dinamo Minsk. Ef Akureyri nær sigri í leiknum í dag þá eru allar líkur á að sunnudagsleikurinn verði annaðhvort gegn liði Arnórs Atlasonar eða þá Ivor Balic og félögum. Það skýrist seinna í dag, fylgist með hér á heimsíðunni eða með því að skoða leikjaplan mótsins . Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook