Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Kristján Orri og Brynar Hólm voru atkvæðamiklir í leiknum28. ágúst 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarÞriggja marka sigur Hauka í fyrsta leik Hafnarfjarðarmótið hófst í dag með tveim leikjum. Í fyrri leiknum sigraði FH Íslandsmeistara ÍBV 27-21. Í seinni viðureign dagsins mættust Akureyri og Haukar. Akureyri var sterkara liðið í fyrri hálfleik og leiddi með einu marki, 13-12. Akureyri hélt frumkvæðinu í fyrra korterið í seinni hálfleiknum en á síðustu mínútunum hikstaði sóknarleikurinn, lélegar sendingar og fljótfærni urðu til þess að Haukar fengu ódýr mörk úr hraðaupphlaupum og innbyrtu þriggja marka sigur, 22-25. Að undanskildum síðustu tíu mínútum leiksins var Akureyrarliðið að spila fínan leik og margt mjög jákvætt í leik liðsins. Vörnin var öflug með þá Sverre og Ingimund í fararbroddi og fyrir aftan vörnina átti Tomas ágætan leik í markinu, varði m.a. tvö vítaköst. Kristján Orri Jóhannsson var markahæstur með 8 mörk og Brynjar Hólm Grétarsson með 6 mörk. Á morgun, föstudag leikur Akureyri við FH klukkan 20:00 en þar á undan mætast Haukar og ÍBV en þeirra leikur hefst klukkan 18:00. Lokaleikirnir verða svo á laugardaginn en þá mætast Akureyri og ÍBV klukkan 14:00 en Haukar og FH klukkan 16:00. Allir leikirnir eru í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook