Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Viðtöl eftir leik ÍR og Akureyrar - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Ingimundur og Heimir búast við spennandi úrslitakeppni



3. apríl 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Viðtöl eftir leik ÍR og Akureyrar

Mbl.is og visir.is hafa birt viðtöl við leikmenn Akureyrar og ÍR um leikinn í gærkvöldi svo og viðureign sömu liða í úrslitakeppninni sem hefst í næstu viku. Við byrjum á viðtölum Hjörvars Ólafssonar á mbl.is sem ræðir við Ingimund Ingimundarson og Bjarna Fritzsson þjálfara ÍR:

Ingimundur: Menn sýndu ekki sparihliðarnar í kvöld

Ingimundur Ingimundarson leikmaður Akureyrar var ánægður með úrslitin, en ekkert sérstaklega ánægður með frammistöðu liðsins þegar liðið lagði ÍR 30:27 í lokaumferð Olís deildar karla í handbolta í Austurbergi í kvöld.
„Ég var ánægður með úrslitin, en spilamennskan var frekar köflótt hjá báðum liðum að mínu mati. Bæði lið voru að hvíla leikmenn og leikurinn bar þess svolítið merki. Þetta var allt í lagi, það voru plúsar og mínusar í þessu hjá okkur í kvöld. Það dugði til sigurs og það er það sem máli skiptir.“

Akureyri mætir ÍR í átta liða úrslitum Olís deildarinnar og Ingimundur býst við allt öðruvísi leik á þriðjudaginn næstkomandi.
„Það verður tekið meira á því á þriðjudaginn kemur og menn munu sýna sparihliðarnar á þriðjudaginn. Mér fannst leikurinn í kvöld bera þess keim að úrslitakeppnin er handan við hornið. Menn lögðu ekki allt í sölurnar og voru að spara sig fyrir komandi átök.“

Ingimundur er spenntur fyrir úrslitakeppninni og líst vel á að mæta ÍR í átta liða úrslitunum.
„Menn eru búnir að leggja á sig mikla vinnu í allan vetur og nú er komið að bónusnum sem menn hafa verið að spila upp á í allan vetur. Leikmenn voru kannski ekki að sýna allt í kvöld vitandi það að það væru miklar líkur á að þessi lið myndi mætast eftir helgi. Núna fara menn að draga fram trompin og sýna hvað í þeim býr.“


Ingimundur átti flottan leik gegn sínum gömlu félögum

Bjarni: Fyrst og fremst stoltur af liðinu

Bjarni Fritzson, spilandi þjálfari ÍR-inga, gat fundið marga jákvæða punkta eftir tap sinna manna fyrir Akureyri í lokaumferð Olís deildar karla í handknattleik í Austurbergi í kvöld.
„Það var kafli í fyrri hálfleik þar sem við svona aðeins missum dampinn. Við byrjuðum leikinn vel og svo kom smá uppgjöf í liðið þegar það gekk illa sóknarlega. Við sýndum svo mikinn karakter í sinni hálfleik og náðum að koma okkur aftur inn í leikinn.“

Bjarni var ánægður með grimmdina og karakterinn í upphafi seinni hálfleiks.
„Við börðum okkur saman í hálfleik og komum grimmir til leiks í seinni hálfleik og náðum að minnka muninn aftur í eitt mark mark um miðbik seinni hálfleiks. Ég var gríðarlega ánægður með karakterinn í liðinu og liðið sýndi að það kemur enginn á heimavöllinn okkar og labbar yfir okkur. Með smá meiri heppni og skynsemi hefðum við getað gert meiri leik úr þessu allt til enda. Ég var mjög ánægður með strákana, þeir gáfust ekki upp og svöruðu fyrir sig í seinni hálfleik.“

Bjarni sagði að ÍR hafi verið í vandræðum með línumenn Akureyrar.
„Við vorum í vandræðum allan tímann með línumennina þeirra. Við vissum að þeir myndu spila mikið upp á þá, en því miður náðum við ekki að leysa það nægilega vel.“

Bjarni er mjög stoltur af árangri ÍR liðsins hingað til í vetur.
„Ég er samt fyrst og fremst bara ofboðslega stoltur af liðinu. Að ná í þriðja sæti í þessari jöfnu og sterku deild. Við erum búnir að lenda í ýmsu í vetur og það að ná þriðja sæti er bara býsna góður árangur. Þetta er besti árangur ÍR í deildarkeppninni frá því árið 2002 að ég held og við getum verið mjög stoltir af honum.“
ÍR mætir Akureyri í átta liða úrslitum Olís deildarinnar og Bjarna líst vel á það einvígi.

„Jú mér líst hriklega vel á það. Við þurfum að spila þétta vörn og ná að keyra hratt á þá. Þeir spila góða vörn og eru með góða markmenn. Við verðum þess vegna að spila agaðan og skynsman sóknarleik. Annars býst ég við 50/50 leikjum og vonandi endar þetta okkar megin. Við erum búnir að æfa síðan í maí til þess að taka þátt í þessum leikjum og við erum mjög spenntir og bjartsýnir.“

Björgvin Hólmgeirsson var ekki með ÍR liðinu í kvöld vegna meiðsla, en Bjarni býst við því að hann verði klár í slaginn á þriðjudaginn kemur.


Þjálfarateymi ÍR, Einar Hólmgeirsson og Bjarni Fritzson íhuga málin

Á visir.is ræddi Stefán Árni Pálsson við Heimi Örn Árnason og Bjarna Fritzson:

Heimir: Þetta verður hörku einvígi

„Það vantaði alveg helling í þetta ÍR-lið í kvöld og það hefði þótt frekar lélegt ef við hefðum ekki klárað þennan leik,“ segir Heimir Örn Árnason, leikmaður Akureyrar.

„Þetta var í raun bara ágætur leikur, kannski á 80 prósent hraða. Úrslitakeppnin leggst vel í okkur. Maður er aðeins að kynnast þessu núna, þrír leikir á sjö dögum. Við þurfum að hvíla okkur vel um helgina en það er gaman að fara aftur í úrslitakeppni.“

Heimir segir að hart verði barist í einvíginu milli ÍR og Akureyrar.
„Þetta er frábært lið og hrikalega skemmtilegir handboltamenn í ÍR. Þetta verður hörku handbolti. Við þurfum að vera hrikalega skynsamir í sókn, þeir eru gríðarlega fljótir fram og síðan þurfum við að sýna okkar fínu vörn, þá getum við farið áfram.“

Bjarni: Ég hlakka mikið til

„Það var kafli í fyrri hálfleik þar sem við settum hökuna niður í bringu og það kostaði okkur mikið,“ sagði Bjarni Fritzson, annar þjálfari ÍR, eftir leikinn.

„Þá náðu þeir upp góðu forskoti sem var erfitt að glíma við. Við náðum að minnka muninn niður í eitt mark í síðari hálfleik en komumst aldrei nær. Ég var samt ánægður með margt hjá okkur í kvöld.“

Bjarni segir að liðið hafi gefið allt í leikinn í kvöld og sýnt mikla baráttu.
„Við gefumst aldrei upp og sérstaklega á heimavelli, þar þurfa öll lið að hafa fyrir hlutunum. Ég hlakka mjög mikið til einvígisins gegn Akureyri. Þetta verður fjör og hörku barátta. Leikirnir verða bara 50/50 leikir og bara hörku fjör.“

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson