Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Hárprúður í ÍR búningnum 20055. apríl 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarIngimundur: Kjafturinn á KA mönnum kveikti í mér Eins og kunnugt er þá mætast Akureyri og ÍR í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins í næstu viku. Sama staða var uppi fyrir tíu árum síðan en árið 2005 mættust KA og ÍR í átta liða úrslitunum. Fyrri leikurinn fór fram á heimavelli ÍR og lauk með þriggja marka sigri ÍR 29-26. ÍR gat fyrst og fremst þakkað Ingimundi Ingimundarsyni sigurinn en hann skoraði ellefu mörk í leiknum. Mikill rígur var á milli liðanna og Ingimundur lét allt flakka í viðtali við DV fyrir seinni leik liðanna í KA Heimilinu. ÍR gerði vel og vann fyrir norðan og sló KA út 2-0.Landsliðsmaðurinn Ingimundur Ingimundarson stal senunni í fyrstu rimmu ÍR og KA í átta liða úrslitum DHL-deildar karla í handknattleik. Þrátt fyrir að leika meiddur fór Ingimundur á kostum í leiknum og skoraði ellefu glæsileg mörk. Kjafturinn á KA-mönnum kveikti í mér Leikur ÍR og KA í Austurbergi á þriðjudag var barátta frá upphafi til enda en það er óhætt að segja að ÍR-ingar hefðu seint farið með sigur af hólmi í leiknum ef Ingimundur Ingimundarson hefði ekki lagt sitt af mörkum með ellefu fallegum mörkum. Frammistaða Ingimundar vakti verðskuldaða athygli viðstaddra enda er hnéð á kappanum ekki upp á sitt besta þar sem hann er meðal annars með skaddaðan liðþófa og þarf að fara í speglun. Ingimundur bítur engu að síður á jaxlinn og ætlar að gefa allt sem hann á til enda mótsins. „Meðan hnéð heldur þá lætur maður slag standa. Þetta gekk fínt að þessu sinni en ég neita því ekki að ég var svolítið þreyttur í hnénu en nánast verkjalaus samt,“ sagði Ingimundur í samtali við DV Sport en hann lét ekki sprauta sig fyrir leikinn heldur lagði hann áherslu á andlegu hliðinu sem félagi hans í landsliðinu, Ólafur Stefánsson, hefur ósjaldan mælt með. „Ég undirbjó mig vel andlega. Ýtti öllum áhyggjum frá mér og einbeitti mér að leiknum. Það er slæmt að hugsa um meiðslin á meðan maður er að spila. Þetta var kannski ekki eins djúpt og hjá Óla en virkaði samt ágætlega,“ sagði Ingimundur og hló létt en læknirinn hans hefur gefið honum leyfi til að spila á meðan hnéð fyllist ekki af vökva og hann finnur ekki mikið til.Óli bjargaði okkur Ingimundur var ekkert sérstakega ánægður með spilamennsku ÍR-liðsins í þessum fyrsta leik gegn KA en hann segir það þó vissulega vera styrkleikamerki að hafa klárað leikinn þrátt fyrir að hafa ekki leikið betur en raun ber vitni. „Ég vil nú líka meina að KA menn hafi ekki verið að leika sinn besta bolta. Ég vil nú sem minnst tjá mig um hvort þetta sé styrkleikamunurinn á liðunum. Bæði lið eiga meira inni og það vantaði ekkert upp á baráttuna hjá öllum. Óli markvörður bjargaði okkur samt að þessu sinni með flottri markvörslu á mikilvægum augnablikum,“ sagði Ingimundur. „Þeir eru helvíti brattir og rífa stólpakjaft. Tala „trash“ eins og það kallast á körfuboltamáli, gaman að því. Það kveikir bara í manni, þannig að þeir mega alveg halda því áfram.“
Helvíti brattir Annar leikur liðanna fer fram í íþróttahúsi KA í kvöld en þegar liðin mættust síðast fyrir norðan fóru heimamenn með þægilegan sigur af hólmi, 31-27. Ingimundur fann sig engu að síður vel í leiknum og skoraði átta mörk. „Við áttum aldrei möguleika í þessum leik. Þeir voru með þetta í öruggum höndum allan leikinn. Það fer samt að koma tími á sigur fyrir norðan og við stefnum á að klára dæmið á Akureyri og fá fína hvíld fyrir undanúrslitin. Það væri ansi fínt,“ sagði Ingimundur sem fékk vænar móttökur hjá unglingalandsliðsmanninum Ragnari Njálssyni í fyrsta leiknum. Ingimundur segir að taktíkin sem KA-strákarnir beiti sé ekki alveg að virka. „Þeir eru helvíti brattir og rífa stólpakjaft. Tala „trash“ eins og það kallast á körfuboltamáli, gaman að því. Það kveikir bara í manni, þannig að þeir mega alveg halda því áfram,“ sagði Ingimundur kátur og hló dátt.10 hlutir sem þú vissir ekki um Ingimund Á dögunum birtist smá grein um Ingimund í N4 dagskránni þar sem fram koma nokkrar staðreyndir sem flestir vita væntanlega ekki um kappann.Heitir fullu nafni Ingimundur Kristján Ingimundarson, kallaður Diddi. „Erum þrír Ingimundar og þar sem afi er kallaður Ingimundur og pabbi Ingi þá ákvað ég ungur að aldri að ég yrði kallaður Diddi.“ Hafði aldrei hugmynd um að hann væri snarlitblindur fyrr en hann fór í sjónpróf fyrir bílprófið, 17 ára. Prófaði CandyCrush í fyrsta skiptið á ævinni núna í vetur, gengur bara sæmilega þrátt fyrir litblinduna. Byrjaði að æfa handbolta 6-7 ára með Þrótti Reykjavík. Er með svo stórt höfuð að það tók hann rúmlega ár að finna reiðhjólahjálm sem komst á hausinn á honum. Næst er að finna snjóbrettahjálm. Var mjög virkur körfuboltamynda safnari sem krakki/unglingur. „Hélt ég yrði ríkur af því einn daginn. Hefur reyndar ekki enn skilað sér.“ Er harður stuðningsmaður Newcastle Utd í enska boltanum. Átti það til að stinga af úr leikskólanum þar sem hann gat opnað hliðið, enda afbrigðilega hávaxinn krakki. Þá lá leiðin í næstu götu til ömmu að fá mjólk og kleinu. Hefur afrekað það að tábrotna í borðtennis. Var stöðvaður af Rannsóknarlögrelunni á bílaplani í Breiðholti þar sem hann var að keyra bíl inní snjóskafla. „Löggan átti upphaflega ekkert erindi við mig, var að skoða eitthvað allt annað mál og var á ómerktum bíl, en ákvað að kanna málið þar sem þeim fannst ökumaðurinn helst til of unglegur – enda var ég 14 ára.“ Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook