Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Sverre og Diddi voru ekki parsáttir að leik loknum20. febrúar 2016 - Akureyri handboltafélag skrifarHvað sögðu menn eftir leikinn í Kaplakrika? FH lagði Akureyri í gær 25-20 eftir sveiflukenndan leik þar sem Akureyri byrjaði leikinn betur en gaf eftir og heimamenn unnu að lokum eftir risaframmistöðu frá markverði þeirra. Morgunblaðið, Vísir og Fimmeinn heyrðu í mönnum að leik loknum og má sjá viðtölin hér að neðan. Hjá mbl.is tók Sindri Sverrisson þá Ingimund og Halldór Jóhann tali.Ingimundur: Létum hann verja allt of mikið „Við erum mjög ósáttir með úrslitin og okkur sjálfa í dag. Við gerðum ekki það sem lagt var upp með, hvorki taktískt séð né andlega,“ sagði Ingimundur Ingimundarson, varnarmaður Akureyringa, eftir 26:21-tapið gegn FH í Kaplakrika í kvöld í Olís-deildinni í handbolta. Ágúst Elí Björgvinsson var maður leiksins en hann varði 26 skot í marki FH-inga, oft úr mjög góðum færum. „Við vorum bara klaufar og þegar við komum okkur í færi létum við hann verja allt of mikið frá okkur,“ sagði Ingimundur, sem vildi ekki meina að Ágúst hefði einhvern veginn komist „inn á sálina“ hjá liðsfélögum hans: „Nei, nei. Þetta er bara flottur upprennandi markmaður og við vissum það alveg, að þeir hefðu þessa hæfileika í markinu. Mér fannst við bara hvorki taktískt né andlega vera eins og við ætluðum okkur, og þegar hausinn er ekki 100 prósent þá verða skotin slakari, sama hvað færið er gott. Hann hirti upp þessi skot,“ sagði Ingimundur, ósáttur við það sem Akureyringar sýndu í kvöld í svo mikilvægum leik, en sigur hefði skilað Akureyri einu stigi frá 3. sæti og fimm stigum frá FH. „Það hefur alveg glitt í þá spilamennsku eftir áramót sem við sýndum í síðustu leikjum fyrir jól, en of lítið. Það er oft talað um að „slæmi kaflinn“ hafi verið of langur hjá liðum, en mér finnst okkar „góði kafli“ bara ekki vera nógu langur. Við erum ekki staddir þar sem við teljum okkur eiga að vera,“ sagði Ingimundur. „Ég tek ekkert af FH-ingunum, þeir voru vel skipulagðir og flottir, en sóknarlega vantaði eitthvað upp á. Við vorum stundum að koma okkur í færi en það var oft eftir eitthvað hnoð og ekkert fallegt. Við eigum að geta gert betur, opnað þessa vörn þeirra betur en við gerðum í dag, en ekki eins og við spiluðum að þessu sinni. Þetta var meira eins og við ætluðum ekki að gera þetta,“ bætti hann við.Halldór Jóhann: Var hálfpartinn farinn að hlæja á bekknum „Leikurinn sem slíkur var ekkert frábær handboltalega séð hjá okkur, en stigin gríðarlega mikilvæg,“ sagði Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari FH, eftir sigurinn á Akureyri í kvöld í Olís-deild karla í handbolta. Eftir sigurinn er FH áfram í 8. sæti en nú sex stigum fyrir ofan ÍR sem situr í fallsæti, og aðeins stigi á eftir Akureyri. Halldór kvaðst eiga eftir að skoða leikinn betur og sagði margt hafa mátt betur fara í leik FH, en bætti við: „Það sem var til staðar var viljinn og allt slíkt sem þarf til að vinna svona mikilvæga leiki. Það urðu einhverjir „match-winnerar“ eins og Gústi [Ágúst Elí Björgvinsson] var klárlega, að stíga upp. Ási [Ásbjörn Friðriksson] átti frábæran leik og vörnin líka. Við lentum í vandræðum þegar við misstum Ágúst [Birgisson] af velli snemma í seinni hálfleik en Jón Bjarni [Ólafsson] kom inn og við leystum þetta. Það var nóg af „match-winnerum“ í liðinu á meðan að það var ekki til staðar hjá þeim. Það var kannski það sem skildi að. Það var rosalega mikið af töpuðum boltum og þetta var sísti leikurinn hjá okkur af þessum þremur eftir áramót,“ sagði Halldór.Gústi búinn að þroskast mikið í vetur Ágúst Elí varði 26 skot í leiknum og um tíma var hann einfaldlega búinn að loka markinu. Hann hefur leikið afar vel eftir áramót eftir að hafa kannski ekki verið upp á sitt besta framan af vetri: „Gústi er frábær markmaður og það hefur alltaf verið vitað. Hann er bara búinn að stíga virkilega upp að undanförnu. Sjáið bara lið eins og þau sem eru í efstu sætunum, og Akureyri þegar liðið var upp á sitt besta fyrir áramót. Þá eru markverðirnir að verja yfir 20 skot í leik. Þetta er svo mikilvægt. Gústi er búinn að þroskast mikið í vetur og vonandi heldur hann bara áfram að þroskast, því við vitum að efnið er til staðar. En núna höldum við bara áfram og horfum á næsta leik. Menn verða ekki hetjur af einhverjum 2-3 leikjum heldur verða að þróast og halda áfram að draga lærdóm,“ sagði Halldór, en blaðamaður minntist enn á Ágúst í ljósi þess hve ótrúlegan leik markvörðurinn átti: „Þetta var lyginni líkast og maður var hálfpartinn farinn að hlæja að þessu á bekknum, en við fögnum náttúrulega bara. Það var mikil spenna og við settum á okkur pressu fyrir leikinn, og hann bar þess svolítið merki. Þetta var gríðarlega mikilvægur leikur,“ sagði Halldór. Hjá visir.is var það Anton Ingi Leifsson sem tók þá Sverre, Halldór Jóhann og Ágúst Elí tali.Sverre: Hvert tap er bakslag „Þetta eru gífurleg vonbrigði miðað við hvernig við töpuðum. Við áttum ekki skilið meira en þetta í dag,” sagði Sverre Jakobsson, þjálfari Akureyrar, í samtali við Vísi stuttu eftir leik. „Við byrjuðum vel, en þú nærð ekki miklum árangri ef þú spilar bara góðar tíu mínútur og ég hreinlega veit ekki hvað gerist svo. Staðan í hálfleik er svo allt í lagi þrátt fyrir að við séum ekki ánægðir með spilamennskuna í heildina. Svo erum við bara miklir klaufar í síðari hálfleik.” „Við skjótum mjög illa á Ágúst og á ögurstöndum tókum við rangar ákvarðanir. Í rauninni vorum við aldrei líklegir í síðari hálfleik, nema kannski þarna rétt í byrjun síðari hálfleiks. Þá náum við smá baráttu og minnkuðum þetta í tvö mörk, en mér fannst við aldrei stiga skrefið til fulls sem þurfti í þessum leik.” „Hann var með einhverja 24 eða 25 bolta. Hann gerir sama hlutinn aftur og aftur og við reynum annað hvort að benda á það eða ræða það, en við höldum því áfram. Kannski minnkaði hjartað aðeins við hvert skot og það vantaði mikið upp á skotgæðin í dag.” Akureyri vann góðan sigur gegn ÍR í síðustu umferð og segir Sverre þetta bakslag. „Hvert tap er backslap, engin spurning. Við vorum í ákveðnu færi hérna í dag að koma okkur lengra úr þessum pakka og búa til smá bil við FH. Það var mikið um að spila og líka hjá þeim og þeir höfðu þetta extra umfram okkur í dag,” sagði Sverre hundfúll í leikslok.Halldór Jóhann: Viljinn var meiri hjá okkur en Akureyri „Þetta var virkilega sterkur sigur og ég er gríðarlega ánægður,” sagði Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari FH, í samtali við Vísi í leikslok. „Ég er ánægðastur með viljann og allt það. Leikurinn sem sjálfur var ekkert fallegur, allt of mikið af teknískum feilum og allt það, en viljinn var til staðar. Viljinn til þess að vinna og viljinn til að taka næsta bolta og halda spennustiginu þrátt fyrir að allt hafi ekki gengið upp.” „Einar Rafn er ekki með sinn besta leik í dag, en þá kemur bara næsti maður og spilar frábærlega. Ágúst Elí var frábær, Ásbjörn frábær, vörnin frábær, Jón Bjarni,” og hélt áfram að lofsama sína menn: „Við missum Ágúst Birgisson útaf með rautt spjald og þurftum aðeins að rótera, en það er viljinn fyrst og fremst í liðinu sem skóp þennan sigur. Viljinn var meiri hjá okkur, en Akureyri.” FH er nú komið sex stigum frá ÍR sem er í fallsæti, því níunda, og er þetta farið að líta mun betur út hjá FH, en það gerði á tímapunkti. „Við þurfum að taka einn leik í einu og við erum ekki að hugsa um neinn sem er eftir þrjár vikur eða eitthvað. Næsti leikur er eftir tvær vikur og við fögnum í kvöld og síðan byrjar undirbúningur fyrir leik gegn Val,” en FH á mjög erfitt leikjaprógramm framundan. „Við eigum Val, Hauka, Aftureldingu og Fram í næstu fjórum leikjum og alla á útivelli. Það verður gríðarlega erfitt prógram og í ljósi þess er þessi sigur mikilvægur fyrir okkur,” sagði Halldór Jóhann að lokum.Ágúst Elí: Hlusta ekki á hann í hálfleik „Þetta var nauðsynlegur sigur og við stóðum undir pressunni,” sagði Ágúst Elí Björgvinsson, markvörður FH, sem varði og varði í markinu. „Ef ég tala fyrir sjálfan mig þá var eins og ég væri sofandi fyrstu sex mörkin og síðan allt í einu kveiknaði á mér. Það gekk vel eftir það,” en aðspurður hvað Halldór, þjálfari, hafi sagt í hálfleik svaraði Ágúst: „Ég hlusta ekki á hann í hálfleik. Ég er sjálfur að reyna dreifa huganum; hugsa um hvað ég gerði um daginn og hvað ég ætli að gera á morgun og eitthvað.” „Ég var ánægðastur með agann. Ég zoon-aði svo oft út í markinu útaf flottum markvörslum, en aginn og varnarleikurinn var mjög góður,” sem segir sigurinn mikilvægan til að komast lengra frá ÍR: „Þeir eru búnir að vera nálægt rassgatinu á okkur mjög lengi og við náðum aðeins að slíta okkur frá þeim og erum stigi á eftir Akureyri.” Ágúst Elí var frábær í markinu, en var þetta hans besti leikur á tímabilinu? „Já og nei. Þetta var mikið af sjónvarpsvörslum, en ég var dálítið lengi í gang. Þetta var allaveganna á topp fimm,” sagði Ágúst í samtali við Vísi. Að lokum var það Þorsteinn Haukur Harðarson hjá fimmeinn.is sem ræddi einnig við þá Sverre, Halldór Jóhann og Ágúst Elí.Sverre: ,,Komum í bæinn til að fylla skottið af stigum en förum tómhentir heim“ VIDEO Halldór Jóhann: ,,Ekki fallegur handbolti en krafturinn og viljinn til staðar“ VIDEO Ágúst Elí: ,,Komið í rútínu að taka blund“ VIDEO Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook