 | |
 | 10. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar Handboltaævintýrið á Akureyri - stórsigur á HKLið Akureyrar Handboltafélags fór hamförum í gær þegar sterkt lið HK kom í heimsókn. Liðið lék klárlega sinn besta leik frá upphafi og vann stórsigur 30-21. Það var ljóst hálftíma fyrir leik Akureyrar og HK í gærkvöldi að eitthvað stórkostlegt lá í loftinu... |
|
 | 9. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar Leikur dagsins: Akureyri - HK í beinni textalýsinguÞað ætti ekki að hafa farið framhjá nokkrum manni að í dag fáum við leikmenn HKí heimsókn í Íþróttahöllina og verður það örugglega hörkuleikur þar sem hvorugt liðið mun gefa þumlung eftir. Leikurinn sjálfur hefst klukkan 19:30 og að sjálfsögðu... |
|
 | 8. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar Skondin uppákoma í síðasta leik - kústamáliðÞað gerast ávallt einhver óvænt og skemmtileg atvik í hverjum handboltaleik. Í síðasta leik, sigurleiknum gegn Stjörnunni dró til tíðinda undir lok leiksins þegar annar dómarinn stöðvaði skyndilega leikinn til að hafa afskipti... |
|
 | 8. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar Líf og fjör í stuðningsmannaherberginu - fleiri myndirÞað er mikil stemming í stuðningsmannaherbergi Akureyrar í kringum heimaleikina. Hálftíma fyrir leik er boðið upp á létta máltíð sem kemur sér vel þar sem leikirnir eru einmitt á kvöldmatartíma. Rúnar Sigtryggsson þjálfari kemur í létt spjall... |
|
 | 7. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar Herbert Guðmundsson hitar upp fyrir leikinn gegn HKEins og menn muna annaðist Háskólabandið lifandi tónlistarflutning fyrir fyrsta heimaleikinn í ár en nú hefur verið staðfest að það verður enginn annar en tónlistarmaðurinn Herbert Guðmundsson sem mun hita upp í Íþróttahöllinni fyrir leik Akureyrar... |
|
 | 7. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar Stórleikur 4. umferðar: Akureyri - HKÁ fimmtudaginn kemur hið öfluga lið HK í heimsókn og mætir okkar mönnum í Íþróttahöllinni klukkan 19:30. HK tapaði í fyrstu umferð fyrir Fram á heimavelli 23-27, í annarri umferð unnu þeir FH á útivelli 33-36 og í síðustu umferð gerðu HK menn sér lítið fyrir og unnu sanngjarnan sigur á Íslandsmeisturum... |
|
 | 7. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar Stuðningsmenn Akureyrar aftur valdir bestir á landinuVefsíðan www.handbolti.is birti í dag val sitt á úrvalsliði 3. umferðar N1 deildar karla sem leikin var í síðustu viku. Að þessu sinni er enginn leikmaður Akureyrar í hópnum en annan heimaleikinn í röð voru hinir ótrúlegu stuðningsmenn Akureyrar liðsins valdir áhorfendur umferðarinnar... |
|
 | 6. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar Frá fyrirliða: Takk fyrir okkur stuðningsmenn!Góðan dag kæru stuðningsmenn Akureyrar handboltafélags. Ég vil fyrir hönd leikmanna þakka fyrir frábæran stuðning í síðasta deildar leik á móti Stjörnunni og einnig í fyrsta leiknum á tímabilinu á móti FH. Það er alveg ljóst að þið svo sannarlega svöruðuð kalli okkar... |
|
 | 5. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar Myndir frá sigurleiknum gegn StjörnunniÞórir Tryggvason sendi okkur myndasyrpu frá leik Akrureyrar gegn Stjörnunni síðastliðinn fimmtudag. Áður höfðum við birt myndir úr stúkunni en hér koma myndir af því sem gekk á niðri á gólfinu... |
|
 | 5. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar Akureyri komið í 16-liða úrslit EimskipsbikarsinsAkureyri vann stórsigur á Handknattleiksfélagi Reykjanesbæjar í gær og varð þar með fyrst liða til að tryggja sig áfram í Eimskipsbikar karla. Leikurinn átti upphaflega að fara fram í Reykjanesbæ... |
|
 | 4. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar Leikur dagsins: HKR - Akureyri í beinni lýsinguÍ dag kemur Handknattleiksfélag Reykjanesbæjar í heimsókn og leika gegn Akureyri Handboltafélagi í 32. liða úrslitum Eimskipsbikarsins. Leikurinn fer fram í KA Heimilinu og er frítt á leikinn... |
|
 | 3. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar Akureyri leikur við HKR á laugardaginn - frítt á leikinn!Á morgun, laugardag hefur Akureyri þátttöku sína í bikarkeppni HSÍ sem kennd er við Eimskip. Sú breyting hefur orðið frá því sem við auglýstum í gær að einungis verður einn leikur þar sem leik Akureyrar 2 og FH 2 hefur verið frestað um viku og er hann nú settur á laugardaginn 11. október... |
|
 | 3. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar Lið Akureyrar á sigurbraut, baráttusigur á StjörnunniÞað var stiginn stríðsdans á parketinu í Höllinni í gærkvöldi eftir magnaðan sigur Akureyrar á Stjörnunni enda var sigurinn mikilvægur fyrir sjálfstraust liðsins eftir vonbrigðin eftir fyrsta heimaleikinn. Það var ljóst strax í upphafi að liðið kom vel stemmt í leikinn... |
|
 | 3. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar Og þá var kátt í Höllinni - Áhorfendur í aðalhlutverkiÞað var rafmögnuð stemming í Íþróttahöllinni í gærkvöldi þegar Stjarnan kom í heimsókn. Hinir frábæru stuðningsmenn Akureyrar létu ekki sitt eftir liggja, fylltu stúkuna og hvöttu sína menn dyggilega áfram... |
|
 | 2. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar Leikur dagsins: Akureyri - Stjarnan í beinni textalýsinguÍ dag fáum við leikmenn Stjörnunnar í heimsókn í Íþróttahöllina og verður það örugglega hörku leikur þar sem bæði lið ætla að krækja í sinn fyrsta sigur á leiktíðinni. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og að sjálfsögðu er skyldumæting... |
|
| << Nýrri fréttir Eldri fréttir >> |