Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




Fréttayfirlit
4. október 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
2. flokkur: Tap gegn Fram á föstudaginn
Strákarnir í 2. flokki áttu ekki sinn besta dag þegar þeir léku gegn Fram á föstudagskvöldið. Leikurinn var reyndar í jafnvægi til að byrja með en Fram náði fljótlega fjögurra marka forskoti. Akureyrarstrákarnir sýndu í kjölfarið flottan leik...
3. október 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Mikilvægur leikur hjá 2. flokki í kvöld
Strákarnir í 2. flokki spila mikilvægan leik í Höllinni í kvöld klukkan 19:00. Það eru Framarar sem koma norður en leikurinn er liður í forkeppni sem sker úr um skiptingu 2. flokks liðanna í deildir. Akureyri er með tvö stig úr tveim leikjum, unnu KR en töpuðu fyrir HK...
3. október 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Hvað sögðu menn eftir leik Akureyrar og Vals?
Eftir æsilegan leik í gærkvöldi voru þjálfarar og leikmenn að venju teknir í viðtöl við fjölmiðla. Við reynum að draga þau saman eins og vant er og erum komin með viðtöl af visir.is, mbl.is og sport.is sem fylgja hér að neðan...
3. október 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Háspenna og dramatík í tapi fyrir Val í kvöld
Eins og yfirleitt þegar Akureyri og Valur mætast þá var boðið upp á hörkuspennandi leik þar sem dramatíkin var allsráðandi. Leikurinn var mjög hraður í upphafi, jafnt á öllum tölum upp í stöðuna 6-6 en þá komu þrjú Valsmörk í röð...
2. október 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Akureyri - Valur í Höllinni
Það hefur vonandi ekki farið framhjá neinum að það er stórleikur í Höllinni í dag. Akureyri mætir þar Val og rétt að ítreka óvenjulegan leiktíma en leikurinn hefst klukkan 18:00. Leikir liðanna hafa verið frábær skemmtun í gegnum árin og við vonumst eftir...
30. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Valsmenn koma sterkir til leiks á fimmtudaginn
Það er sterkt lið Valsmanna sem heimsækir Akureyri næstkomandi fimmtudag. Valsmenn voru ekki langt frá því að fara alla leið í deildinni í fyrravetur en féllu úr leik í fjögurra liða úrslitunum gegn ÍBV í dramatísku fimm leikja einvígi. Eins og menn muna héldu Vestmannaeyingar...
29. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Sigþór Árni bestur í 3. umferð að mati sport.is
Frábær frammistaða Sigþórs Árna Heimissonar í leiknum gegn Stjörnunni hefur ekki farið framhjá þeim sem fjalla um Olís-deild karla í fjölmiðlum. Eins og kom fram í fréttinni hér á undan voru Sigþór Árni og Heiðar Þór Aðalsteinsson valdir í úrvalslið umferðarinnar af vefnum fimmeinn.is...
29. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Fimmeinn.is velur Sissa og Heidda í lið 3. umferðar
Handboltavefurinn fimmeinn.is hefur valið úrvalslið 3. umferðar Olís-deildar karla. Sigþór Árni Heimisson sem átti stórleik og skoraði 11 mörk gegn Stjörnunni er valinn besti miðjumaður umferðarinnar...
26. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Skilaboð frá þjálfarateyminu eftir Stjörnuleikinn
Stuðningsmenn Akureyrar mættu vel á leikinn gegn Stjörnunni og héldu uppi frábærum stuðningi við liðið. Sverre Jakobsson sendi meðfylgjandi kveðju frá þjálfarateyminu til stuðningsmanna á facebook síðu Akureyrarliðsins:
Kæru stuðningsmenn - fyrir hönd liðsins langar okkur að þakka ykkur fyrir þann flott stuðning sem þið sýnduð okkur í gær...
26. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Hvað sögðu menn eftir leik Akureyrar og Stjörnunnar?
Eftir æsispennu og dramatík í Höllinni í gærkvöld voru leikmenn og þjálfarar gripnir í viðtöl og eins og við er að búast voru menn ýmist alsælir eða svekktir. Hér eru samantekin viðtöl af mbl.is, visir.is og vídeóviðtöl af sport.is...
25. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Rafmagnaður sigur á Stjörnunni í kvöld
Það var ekki laust við að það væri skjálfti í leikmönnum og stuðningsmönnum Akureyrar í fyrsta heimaleik tímabilsins. Það voru hins vegar Stjörnumenn sem komu baráttuglaðir til leiks og svo sannarlega voru þeir miklu betra liðið framan af, komust í 5-1...
25. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Frítt á heimaleiki Akureyrar fyrir 15 ára og yngri
Við viljum árétta að í vetur greiða fimmtán ára og yngri ekki aðgangseyri á heimaleiki Akureyrar Handboltafélags. Sextán ára og eldri greiða hins vegar 1.500 kr á staka leiki. Það eru því rangar upplýsingar á auglýsingunni um leikinn hvað þetta varðar og biðjumst við velvirðingar á því....
25. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Heimaleikur gegn Stjörnunni
Þá er stóra stundin runnin upp, fyrsti heimaleikur Akureyrar á tímabilinu er í dag þegar strákarnir okkar taka á móti Stjörnunni úr Garðabæ. Akureyrarliðið hefur tekið töluverðum breytingum frá síðasta tímabili og margir bíða í óþreyju eftir að sjá liðið í alvöruleik...
24. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Brynjar ekki í leikbanni gegn Stjörnunni
Eins og menn muna þá fékk Brynjar Hólm Grétarsson beint rautt spjald á lokasekúndunni í leiknum gegn HK. Margir gerðu því skóna að Brynjar fengi bann í kjölfarið en nú hefur aganefnd HSÍ komið saman og var málið ekki á dagskrá fundarins þannig að skýrsla...
24. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Fimmeinn.is velur Sigþór Heimisson í úrvalslið 2. umferðar
Handboltavefurinn fimmeinn.is hefur valið úrvalslið 2. umferðar Olís-deildar karla. Sigþór Árni Heimisson sem átti stórgóðan leik gegn Haukum á sunnudaginn er valinn besti miðjumaður umferðarinnar og er Sissi vel að því vali kominn...
 << Nýrri fréttirEldri fréttir >> 
Lokabaráttan hjá Ungmennaliðinu

Akureyri á Facebook


    

Danski handboltinn
Þýski handboltinn
Norski handboltinn
Sænski handboltinn
Færeyski handboltinn

Þýskar handboltafréttir
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson