Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




Fréttayfirlit
6. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Spennandi lokaumferðir í Olís-deildinni
Akureyri mætir aftur í Hafnarfjörðinn á fimmtudaginn og mætir þá Haukum í næstsíðustu umferð Olís-deildarinnar. Það er gríðarlega mikið undir hjá báðum liðum en Haukar geta tryggt sér deildarmeistaratitilinn á meðan Akureyri er í hörku baráttu um að sleppa við umspilið...
1. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
2. flokkur: Tap í síðustu tveim leikjunum
Strákarnir í 2. flokki léku tvo síðustu deildarleikina fyrir sunnan um síðustu helgi. Því miður náðust ekki stig í þessum leikjum, fyrri leikurinn var gegn Val og tapaðist hann illa eða 37-27. Seinni leikurinn var gegn Aftureldingu og þar misstu strákarnir góða stöðu niður...
29. mars 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Sigþór leikmaður 19. umferðar að áliti Morgunblaðsins
Morgunblaðið hefur valið leikmenn 19. umferðar Olís-deildar karla sem fór fram í síðustu viku. Akureyrarliðið á þrjá fulltrúa í liði vikunnar að þessu sinni eftir magnaðan sigurleik gegn FH. Það eru Sigþór Árni Heimisson vinstri skytta, Þrándur Gíslason línumaður og Hreinn Þór Hauksson sem varnarmaður...
28. mars 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
2. flokkur: Síðustu tveir deildarleikirnir um helgina
Strákarnir í 2. flokki spila tvo leiki fyrir sunnan núna um helgina. Klukkan 19:30 í dag, föstudag spila þeir við Val sem er sem að öllum líkindum eru búnir að tryggja sér deildarmeistaratitilinn. Á laugardaginn mæta strákarnir Aftureldingu og hefst sá leikur klukkan 13:00...
28. mars 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Viðtöl eftir leik FH og Akureyrar
Það er óhætt að segja að spennustigið hafi verið hátt í Kaplakrikanum í gær þegar Akureyri vann afar mikilvægan sigur á FH. Blaðamenn visir.is og Morgunblaðsins tóku nokkur viðtöl eftir leikinn sem fara hér á eftir. Byrjum á viðtölum Guðmundar Marinós Ingvarssonar hjá visir.is...
27. mars 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Magnaður útisigur Akureyrar á FH
Leikir Akureyrar og FH hafa verið magnaðir undanfarin ár og á því varð engin breyting í kvöld. Það var mikið undir hjá báðum liðum, FH í baráttu um að komast í úrslitakeppnina og Akureyri að reyna að komast úr 7. sætinu, umspilssætinu...
25. mars 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Akureyri fer í Kaplakrika á fimmtudaginn
Akureyri mætir í Hafnarfjörðinn og leikur gegn FH á fimmtudaginn. Rimma þessara liða hefur verið hrikalega hörð síðustu ár og verður fróðlegt að fylgjast með hvernig þessi leikur fer. Síðustu tveir leikir liðanna voru hér í Íþróttahöllinni með nokkurra daga millibili...
25. mars 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
2. flokkur: Útisigur á Haukum um helgina
Það var ýmislegt sem fór úr skorðum vegna ófærðarinnar um síðustu helgi. Strákarnir í 2. flokki áttu að leika tvo leiki fyrir sunnan, gegn Aftureldingu og Haukum. Ekkert varð af leiknum gegn Aftureldingu en strákarnir drifu sig suður í bítið á sunnudaginn...
25. mars 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Bjarni Fritzson í liði umferðarinnar hjá Mbl.
Morgunblaðið hefur valið leikmenn 18. umferðar Olís-deildar karla sem fór fram í síðustu viku. Bjarni Fritzson er fulltrúi Akureyrarliðsins í liðinu að þessu sinni en hann var markahæstur Akureyrarliðsins í leiknum gegn Val. Það er Akureyringurinn Geir Guðmundsson...
23. mars 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Viðtöl eftir leik Akureyrar og Vals:
Það fer ekki mikið fyrir viðtölum eftir leikinn, kannski hefur óvissan um leiktíma orðið til þess að ekki virtust allir blaðamenn hafa átt heimangengt á leikinn, loks þegar hann var flautaður á. Ólafur Þórisson blaðamaður Morgunblaðsins stóð vaktina...
23. mars 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Háspennujafntefli Akureyrar og Vals
Það var svo sannarlega langur aðdragandi að leik Akureyrar og Vals sem fór fram í gær. Upphaflega átti leikurinn að vera á fimmtudaginn en var frestað til föstudags vegna ófærðar. Sama ófærðin var á föstudaginn þannig að leiknum var aftur frestað til klukkan fjögur á laugardag...
22. mars 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Akureyri-Valur í KA-heimilinu - klukkan 19:30
Nú er búið að ákveða að leikur Akureyrar og Vals hefst klukkan 19:30 í dag.
Eftir ófærð síðustu daga hefur gengið erfiðlega að opna Öxnadalsheiðina en nú telja menn að það muni takast og að leikurinn hefjist klukkan 19:30 í KA-heimilinu...
21. mars 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leik Akureyrar og Vals frestað til laugardags
Ekkert lát er á ófærðinni og því aftur búið að fresta leika Akureyrar og Vals. Nú er gert ráð fyrir að leikurinn fari fram á laugardaginn klukkan 19:30 í KA-heimilinu....
19. mars 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Hamingjuóskir til Íslandsmeistara SA
Karlalið Skautafélags Akureyrar tryggði sér í gærkvöldi Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí eftir að hafa lagt Björninn í úrslitaeinvíginu 3-0. Þann 9. mars varð kvennalið SA Íslandsmeistari eftir að hafa sömuleiðis unnið úrslitarimmuna við Björninn 3-0...
19. mars 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Næstsíðasti heimaleikur Akureyrar í deildinni
Vegna ófærðar hefur leik Akureyrar og Vals sem vera átti í kvöld, fimmtudag, verið frestað og raunar frestað aftur. Nýjasta tímasetning á leiknum er nú klukkan 19:30 á morgun, laugardag og verður leikið í KA-heimilinu...
 << Nýrri fréttirEldri fréttir >> 
Lokabaráttan hjá Ungmennaliðinu

Akureyri á Facebook


    

Danski handboltinn
Þýski handboltinn
Norski handboltinn
Sænski handboltinn
Færeyski handboltinn

Þýskar handboltafréttir
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson