Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




Fréttayfirlit
30. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leik ÍBV og Akureyrar frestað um óákveðinn tíma
Nú er búið að fresta leik ÍBV og Akureyrar um einn sólarhring þannig að nýr leiktími er klukkan 13:30 á sunnudag. Nú verðum við bara að vona að veðurguðirnir verði hagstæðir þannig að af leiknum verði á þessum tíma...
29. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
2. flokkur: Tveir hörkuleikir um helgina - frestun
Þó að meistaraflokkur Akureyrar sé að spila í Vestmannaeyjum á laugardaginn þýðir það ekki að við fáum ekki leiki um helgina. Strákarnir í 2. flokki spila tvo leiki við Stjörnuna, fyrst í deildarkeppninni og síðan í bikarkeppninni...
28. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Akureyri fer til Eyja á laugardaginn
Það er áhugaverður dagur framundan hjá Akureyri Handboltafélagi á laugardaginn. Ferðalag til Vestmannaeyja og þar bíður erfiður útileikur þar sem menn þurfa að tjalda öllu til sem þeir eiga. Akureyrarliðið átti flottan leik í síðustu umferð og sýndi að menn eru tilbúnir ...
27. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Valþór og Kristján Orri í úrvalsliði sport.is og handbolti.org
Í gær sögðum við frá úrvalsliði Morgunblaðsins fyrir 9. umferð Olís-deildar karla. Nú hafa handbolti.org og sport.is birt sín úrvalslið umferðarinnar og má segja að sitt sýnist hverjum miðli. Kristján Orri Jóhannsson er valinn besti hægri hornamaðurinn ...
27. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Akureyri fékk heimaleik gegn HK í Coca Cola-bikarnum
Nú rétt í þessu var dregið um hvaða lið mætast í sextán liða úrslitum Coca Cola-bikar karla. Akureyri og HK drógust saman og þar sem bæði lið eru í sömu deild fær Akureyri heimaleikinn þar sem liðið var dregið á undan...
26. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Jovan og Valþór í liði 9. umferðar hjá Morgunblaðinu
Morgunblaðið birti í morgun val á úrvalsliði 9. umferðar Olís-deildar karla og að þessu sinni á Akureyri tvo fulltrúa í liðinu. Það eru markvörðurinn Jovan Kukobat og skyttan/leikstjórnandinn Valþór Guðrúnarson. Báðir áttu prýðisleik í sigurleiknum gegn ÍR...
25. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
2. flokkur: Þrjú stig í hús um helgina
Strákarnir í 2. flokki léku tvo leiki við Selfyssinga um helgina og voru þetta fyrstu heimaleikir þeirra í deildinni. Laugardagsleikurinn fór ekki nógu vel af stað hjá þeim og voru þeir sex mörkum undir í hálfleik, 11-17 og útlitið ekki gott...
23. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Myndasyrpa frá bikarleiknum gegn Þrótti
Um síðustu helgi má segja að Akureyri Handboltafélag hafi brotið ákveðið blað. Sigur liðsins á Þrótti Reykjavík í Coca Cola bikarnum var fyrsti sigur Akureyrar í bikarleik í Laugardalshöllinni. Þar að auki komst liðið á sigurbraut á ný þetta tímabilið...
23. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Viðtöl eftir leik Akureyrar og ÍR
Nokkur viðtöl hafa séð dagsins ljós eftir sigurleik Akureyrar á ÍR á dögunum. Við byrjum á að kíkja á visir.is þar sem Birgir H. Stefánsson ræddi við Heimi Örn, Þránd og Bjarka þjálfara ÍR í leikslok...
22. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Tveir heimaleikir hjá 2. flokki um helgina
Strákarnir í 2. flokki Akureyrar leika sína fyrstu heimaleiki um helgina. Á laugardaginn klukkan 15:30 mæta þeir Selfyssingum og veður leikið í Íþróttahöllinni. Sömu lið mætast svo aftur á sama stað á sunnudaginn klukkan 10:30...
22. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Magnaður sigur Akureyrar á ÍR í kvöld
Það var heldur betur rafmögnuð spenna í Íþróttahöllinni í kvöld þegar Akureyri tók á móti bikarmeisturum ÍR. Akureyrarliðið kom nokkuð breytt til leiks frá síðasta leik, samningi liðsins við Serbann Vladimir Zejek hefur verið sagt upp og því sat Vladi á meðal áhorfenda í stúkunni...
20. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Jovan Kukobat stendur fyrir sínu
Íþróttavefirnir hafa tekið saman yfirlit yfir frammistöðu markvarða í Olísdeildinni og þar er Jovan Kukobat í þriðja sæti, með 117 varða bolta. Jovan hefur verið afar traustur í vetur og trúlega jafnbesti maður liðsins. Röð markvarðanna er sem hér segir...
20. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Þrándur í liði 8. umferðar hjá sport.is
Vefurinn sport.is tilkynnti á dögunum val sitt á úrvalsliði 8. umferðar Olís-deildar karla. Akureyri á einn fulltrúa í liði þeirra sport.is manna, það er línumaðurinn og varnarjaxlinn Þrándur Gíslason. Í umfjöllun þeirra um valið kemur fram að línumannsstaðan...
19. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Gríðarlega mikilvægur heimaleikur á fimmtudaginn
Það er komið að heimaleik í Olís-deildinni, loksins segja margir enda hefur Akureyri aðeins leikið þrjá heimaleiki það sem af er tímabilinu. Að þessu sinni eru það ríkjandi bikarmeistarar ÍR sem koma í heimsókn og engin hætta á öðru en að þeir mæti dýrvitlausir til leiks...
17. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Tíu marka sigur á Þrótti í bikarnum
Akureyri hóf bikarkeppnina með tíu marka sigri á Þrótti Reykjavík í dag. Lokatölur urðu 19 – 29 eftir að Akureyri leiddi 9 – 19 í hálfleik. Eins og tölurnar bera með sér réð Akureyri algjörlega ferðinni í fyrri hálfleik og úrslitin ráðin í hálfleik...
 << Nýrri fréttirEldri fréttir >> 
Lokabaráttan hjá Ungmennaliðinu

Akureyri á Facebook


    

Danski handboltinn
Þýski handboltinn
Norski handboltinn
Sænski handboltinn
Færeyski handboltinn

Þýskar handboltafréttir
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson