 | |
 | 16. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar Sverre í viðtali um komandi tímabilSverre Andreas Björnsson, annar þjálfari Akureyrar var í viðtali við vefinn fimmeinn.is í dag í kjölfar þess að spá forráðamanna liðanna var birt í dag. Sverre kveðst alveg rólegur yfir spánni, 4. sæti ekkert óraunhæft ef hlutirnir ganga upp. Þetta byggist allt á að menn haldist heilir... |
|
 | 16. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar Akureyri spáð 4. sæti Olís-deildarÍ dag var birt árleg spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna HSÍ. Niðurstöður spámannanna eru á þá leið að Val er spáð deildarmeistaratitlinum en HK botnsætinu. Að sjálfsögðu er varasamt að taka slíkum spám of hátíðlega, sérstaklega er viðbúið að... |
|
 | 13. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar 2. flokkur: Góður sigur hjá Akureyri gegn KRStrákarnir í 2. flokki hófu leiktíðina með öruggum sigri á KR í forkeppni 2. flokks þar sem leikið er um sæti í sjálfri deildarkeppninni. Það vakti nokkra athygli þegar strákarnir gengu til leiks að Akureyrarliðið lék í KA treyjum en einhver ruglingur hafði orðið með búninga liðsins... |
|
 | 10. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar 2. flokkur með heimaleik gegn KR á laugardaginnFyrsti alvöruleikur tímabilsins verður í Íþróttahöllinni klukkan 14:00 á laugardaginn þegar 2. flokkur Akureyrar tekur á móti KR. Það eru þrettán lið skráð til leiks í Íslandsmótinu í 2. flokki og hefst mótið með forkeppni sem sker úr um hvaða lið leika síðan í 1. og 2. deild í vetur... |
|
 | 7. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar Opna Norðlenska 2014 gert upp - myndirÞá er vel heppnuðu móti lokið þetta árið. Tveir fyrstu leikir mótsins unnust með miklum markamun, Akureyri vann stórsigur á Hömrunum og Fram vann ÍR stórt. En þetta átti eftir að breytast og bæði Hamrarnir og ÍR komu mun sterkari til leiks seinni daginn... |
|
 | 6. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar Seinni degi Opna Norðlenska lokiðFjórir leikir voru á dagskránni í dag og óhætt að segja að hafi verið mikið fjör í Íþróttahöllinni. Fyrsti leikur dagsins var á milli Hamranna og ÍR. Heimir Örn Árnason klæddist Hamrabúningnum í dag og sýndi að hann á ennþá ýmiss vopn í vopnabúrinu... |
|
 | 5. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar Fyrri leikdegi á Opna Norðlenska lokið - myndirAkureyri og Hamrarnir mættust í fyrsta leik mótsins. Hamrarnir tefldu fram öflugu liði, m.a. var Hreinn Þór Hauksson í Hamraliðinu ásamt ýmsum sem eru í æfingahópi Akureyrar. Akureyri leiddi í hálfleik 18-12 og unnu síðan sannfærandi 38-25. Elías Már Halldórsson var markahæstur... |
|
 | 5. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar Leikmannakynningin 2014 – myndirÞað var góður hópur sem kom í Íþróttahöllina í gærkvöldi á hina árlegu leikmannakynningu Akureyrar Handboltafélags. Framkvæmdastjóri félagsins, Hlynur Jóhannsson bauð gesti velkomna og fór stuttlega yfir málin framundan. Opna Norðlenska mótið sem hefst seinna í dag... |
|
 | 3. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar Stuðningsmannaskírteini 2014-2015Akureyri Handboltafélag á dyggan stuðningsmannaklúbb sem stendur þétt að baki félaginu og skapar frábæra stemmingu í kringum heimaleikina. Í ár var fjölgað um tvö lið í úrvalsdeildinni, Olís deildinni þannig að þau eru nú 10 í stað 8 undanfarin ár. Heimaleikirnir í Olís deildinni verða því að minnsta kosti 13 en 14 ef... |
|
 | 1. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar Handboltaveisla framundanNú styttist í handboltavertíðina og eins og undanfarin ár er æfingamótið Opna Norðlenska lokapunktur í undirbúningi Akureyrarliðsins. Að þessu sinni taka fjögur lið þátt í mótinu, Fram, ÍR og 1. deildarliði Hamranna auk heimamanna... |
|
 | 31. ágúst 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar Tomas og Kristján Orri í úrvalsliði HafnarfjarðarmótsinsVið lok Hafnarfjarðarmótsins í gær var tilkynnt um val á úrvalsliði mótsins. Akureyri Handboltafélag átti tvo fulltrúa í liðinu en það voru Tomas Olavsson, besti markvörðurinn og Kristján Orri Jóhannsson, besti hægri hornamaðurinn... |
|
 | 30. ágúst 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar Sigur á ÍBV á HafnarfjarðarmótinuÍ dag var síðasti dagur Hafnarfjarðarmótsins og hófst hann með leik Akureyrar og Íslandsmeistara ÍBV. Akureyrarliðið byrjaði illa í leiknum og virtust Vestmannaeyingar ætla að valta yfir okkar menn, náðu mest tíu marka forskoti. En Akureyringar gáfust ekki upp ... |
|
 | 29. ágúst 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar Tveggja marka tap gegn FH í kvöld - myndirAkureyrarliðið byrjaði illa gegn FH í kvöld og náði FH fljótlega fjögurra marka forskoti. Akureyri vann sig smám saman inn í leikinn, ekki síst vegna góðrar frammistöðu Tómasar í markinu þannig að forysta FH var aðeins tvö mörk í hálfleik, 15-13... |
|
 | 29. ágúst 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar Sverre í viðtali við fimmeinn.is eftir HaukaleikinnTíðindamaður handboltasíðunnar fimmeinn.is, Þráinn Guðbrandsson ræddi við Sverre Jakobsson eftir leikinn gegn Haukum í Hafnarfjarðarmótinu. Við birtum hér viðtalið og nokkra myndir frá leik Akureyrar og Hauka sem einnig eru fengnar af fimmeinn.is... |
|
 | 28. ágúst 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar Þriggja marka sigur Hauka í fyrsta leikHafnarfjarðarmótið hófst í dag með tveim leikjum. Í fyrri leiknum sigraði FH Íslandsmeistara ÍBV 27-21. Í seinni viðureign dagsins mættust Akureyri og Haukar. Akureyri var sterkara liðið í fyrri hálfleik og leiddi með einu marki, 13-12. Akureyri hélt frumkvæðinu í fyrra korterið í seinni hálfleiknum... |
|
| << Nýrri fréttir Eldri fréttir >> |