Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




Fréttayfirlit
20. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Akureyri mætir ÍBV aftur á laugardaginn, í Eyjum
Þriðji hluti Olís-deildar karla hefst í dag með þremur leikjum, Akureyri hefur þennan hluta með útileik gegn ÍBV en sá leikur verður á laugardaginn og hefst klukkan 13:30. Liðin mættust í Eyjum síðasta sunnudag í hörkuleik þannig að búast má við að sama barátta verði...
19. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
2. flokkur: breyting á leiktíma á laugardaginn
Búið er að seinka leik Akureyrar og Aftureldingar í 2. flokki á laugardaginn um klukkutíma þannig að hann hefst klukkan 17:00 í staðinn fyrir klukkan 16:00 eins og áður var fyrirhugað. Meistaraflokkar beggja liða standa í ströngu þessa helgi en nokkrir strákar í 2. flokki eru í leikmannahópi...
18. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Risaleikur í dag hjá KA/Þór í Olís-deildinni
Í dag, þriðjudaginn 18. febrúar tekur meistaraflokkur KA/Þór á móti toppliði Stjörnunnar og óhætt að segja að það sé leikur sem enginn má missa af. Stjarnan trónir í efsta sæti deildarinnar með sex stiga forystu á næstu lið. Stjarnan er taplaus í Olís-deildinni ...
18. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Sport.is og handbolti.org með Bjarna í liði 14. umferðar
Eins og við greindum frá um daginn þá valdi Morgunblaðið Bjarna Fritzson leikmann 14. umferðar Olís-deildar karla og jafnframt Halldór Loga Árnason varnarmann umferðarinnar. Nú hafa sport.is og handbolti.org sömuleiðis birt sitt val á úrvalsliði umferðarinnar...
17. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Hvað sögðu menn eftir leik ÍBV og Akureyrar?
Að venju höfum við fundið nokkur viðtöl við leikmenn og þjálfara liðanna. Hér á eftir eru nokkur vídeóviðtöl en við byrjum á viðtölum Guðmundar Tómasar Vigfússonar tíðindamanns visir.is sem hann tók við þjálfarana Heimi Örn Árnason og Arnar Pétursson...
16. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Tap í hörkuleik í Eyjum
Í dag fór loksins fram margfrestaður leikur ÍBV og Akureyrar úr 10. umferð Olís-deildarinnar. Leikmenn ÍBV buðu frítt á leikinn til að bæta fyrir skellinn sem þeir fengu gegn Val í síðustu umferð, það var því ljóst að þeir ætluðu að sanna sig fyrir sínum stuðningsmönnum...
15. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Titringur í Eyjum fyrir sunnudagsleikinn
Leikmenn Akureyrar og ÍBV hafa nóg að gera þessa dagana en þegar liðin mætast á sunnudaginn verður það fimmti leikur leikmanna á sextán dögum. Leikurinn á sunnudaginn er margfrestaður en hann tilheyrir 10. umferð Olís-deildarinnar og hann hefur töluvert að segja um framhald deildarinnar fyrir öll liðin...
15. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Bjarni Fritzson leikmaður 14. umferðar
Blaðamenn Morgunblaðsins hafa valið úrvalslið 14. umferðar Olís-deildarinnar sem var leikin á fimmtudaginn. Frábær leikur Bjarna Fritzsonar í leik Akureyrar og FH fór ekki framhjá þeim og auk þess að vera valinn hægri hornamaður umferðarinnar þá var Bjarni valinn besti leikmaður umferðarinnar. Halldór Logi Árnason var öflugur í Akureyrarvörninni...
14. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Hvað höfðu menn að segja eftir sigurinn á FH?
Eins og gefur að skilja voru heimamenn alsáttir eftir að hafa landað sigri á FH í gærkvöldi en Hafnfirðingar að sama skapi ekkert of sælir. Blaðamenn Mbl og visir.is ræddu við nokkra leikmenn og þjálfara í leikslok. Einar Sigtryggsson blaðamaður Mbl ræddi við...
13. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Magnaður sigur á FH í kvöld
Það er óhætt að segja að leikir Akureyrar og FH séu ávísun á spennu og dramatík. Leikurinn í kvöld var svo sannarlega skemmtilegur og spennandi fyrir áhorfendur. Í upphafi leiks kom í ljós að Heimir Örn Árnason myndi ekki vera í leikmannahópnum vegna eimsla...
13. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Akureyri – FH í Olís-deildinni
Það er leikið þétt í handboltanum þessa dagana og mætast Akureyri og FH aftur hér í Íþróttahöllinni í dag. Sá leikur er í Olís-deildinni en leikurinn tilheyrir 14. umferð deildarinnar. Staða liðanna að henni lokinni segir til um hvaða leikir verða á heimavelli...
10. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Æsilegur bikarslagur Akureyrar og FH
Áhorfendur fengu svo sannarlega að upplifa spennu og hasar í Höllinni í þegar Akureyri og FH mættust í átta liða úrslitum bikarkeppninnar.
Akureyrarliðið tók öll völd á vellinum í upphafi og komst í 6-1 áður en gestirnir náðu áttum...
10. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Akureyri – FH í Coca-Cola bikarnum
Það má segja að það verði leikið upp á líf eða dauða í Íþróttahöllinni í kvöld þegar Akureyri og FH mætast í átta liða úrslitum Coca-Cola bikarsins. Það er einfaldlega þannig að tap í bikarleik þýðir að þátttöku tapliðsins í keppninni er lokið...
6. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Tap gegn Haukum í Hafnarfirðinum
Það var eins og við mátti búast að róðurinn yrði erfiður fyrir Akureyri gegn Haukum í kvöld á þeirra heimavelli. Akureyrarliðið hóf leikinnaf krafti og leiddi í upphafi. Sóknin gekk fínt og varnarleikurinn með ágætum. Þar fyrir aftan fór Jovan Kukobat mikinn í markinu...
6. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Haukar - Akureyri í beinni útsendingu á Haukar TV
Það verður flautað til leiks í Schenkerhöllinni í Hafnarfirði klukkan 18:00 í dag þar sem Akureyri mætir heimamönnum í Haukum. Haukar hafa ekki verið mjög gestrisnir á heimavelli í vetur og hirt öll stig, utan eitt, sem í boði hafa verið. En einhverntíma verður allt fyrst...
 << Nýrri fréttirEldri fréttir >> 
Lokabaráttan hjá Ungmennaliðinu

Akureyri á Facebook


    

Danski handboltinn
Þýski handboltinn
Norski handboltinn
Sænski handboltinn
Færeyski handboltinn

Þýskar handboltafréttir
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson