Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




Fréttayfirlit
18. desember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Taktu frá sunnudaginn 29. desember
Það verður líf og fjör á stórbingói Akureyrar Handboltafélags í Íþróttahöllinni á síðasta sunnudegi ársins. Spilaðar verða margar umferðir enda búið að safna fjölmörgum veglegum vinningum þannig að það er til mikils að vinna...
16. desember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
2. flokkur: Tveir heimaleikir gegn Stjörnunni í vikunni
Þrátt fyrir að skollið sé á hefðbundið hlé á leikjum meistaraflokka í handboltanum þá eru strákarnir í 2. flokki ekki komnir í jólafrí. Akureyri leikur tvo heimaleiki gegn Stjörnunni núna í vikunni, annar leikurinn er í bikarkeppninni en hinn í deildarkeppninni...
10. desember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Gunnar og Valþór í úrvalsliði 11. umferðar hjá Mbl
Morgunblaðið birti í morgun val á úrvalsliði 11. umferðar Olís-deildar karla og að þessu sinni á Akureyri tvo fulltrúa í liðinu. Það eru skyttan/leikstjórnandinn Valþór Guðrúnarson og Gunnar Malmquist Þórsson sem varnarmaður. Báðir fóru á kostum í sigurleiknum gegn HK...
10. desember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Þrír leikmenn Akureyrar í liði 11. umferðar hjá sport.is
Vefurinn sport.is hefur birt val sitt á úrvalsliði 11. umferðar Olís-deildarinnar. Það er greinilegt að frammistaða Akureyrarliðsins hefur vakið athygli því að liðið á þrjá leikmenn í úrvalsliðinu. Það eru Jovan Kukobat í markinu, Kristján Orri Jóhannsson sem hægri skytta og Sigþór Árni Heimisson sem leikstjórnandi...
10. desember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
2. flokkur: Þrjú stig gegn Haukum um helgina
Strákarnir í 2. flokki áttu tvo heimaleiki um helgina, báða gegn Haukum úr Hafnarfirði. Fyrri leikurinn var spilaður klukkan 14:00 á laugardaginn og unnu strákarnir þar flottan sigur. Staðan í hálfleik var 15-11 fyrir heimamenn sem síðan bættu hressilega við í seinni hálfleiknum...
9. desember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Viðtöl eftir bikarleik Akureyrar og HK
Blaðamenn Morgunblaðsins og visir.is voru mættir á bikarleik Akureyrar og HK í gær og tóku viðtöl við þjálfarana Heimi Örn Árnason og Samúel Ívar Árnason í leikslok. Skoðum fyrst viðtöl Einars Sigtryggssonar frá Morgunblaðinu...
8. desember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Akureyri áfram í bikarnum eftir sigur á HK
Akureyri og HK mættust öðru sinni á fjórum dögum í Höllinni, að þessu sinni í 16-liða úrslitum Coca-Cola bikarsins. Vitað mál var að þessi leikur yrði erfiður þar sem HK myndi leggja allt í sölurnar til að hefna fyrir tapið í deildinni á fimmtudaginn...
6. desember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Handboltahelgin mikla á Akureyri
Leikur Akureyrar og HK í gærkvöldi var ágætis forsmekkur að helginni sem segja má að handboltinn ráði ríkjum. Alls verða fjórir leikir í karlaboltanum um helgina þar sem 2. flokkur Akureyrar spilar tvo leiki gegn Haukum, Hamrarnir taka á móti vesturbæjarstórveldinu KR í 1. deildinni og rúsínan í pylsuendanum verður svo bikarslagur Akureyrar og HK...
6. desember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Hamrarnir taka á móti KR á laugardaginn
Stórleikur verður í 1. deild karla í handbolta á laugardaginn klukkan 18.00 þegar að Hamrarnir taka á móti stórveldinu úr Vesturbænum, KR. Leikurinn verður í KA heimilinu...
6. desember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Viðtöl eftir deildarleik Akureyrar og HK
Hér á eftir fylgja viðtöl þeirra Ólafs Más Þórissonar á mbl og Birgis H. Stefánssonar hjá visir.is eftir leik gærdagsins þar sem Akureyri fór með sigur á HK, 27-21. Fyrri viðtölin tvö eru frá Ólafi Má en tvö þau seinni eru ættuð frá Birgi H...
5. desember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Öruggur sigur Akureyrar á HK
Það var mikið undir hjá báðum liðum í kvöld, HK þarf sárlega á stigum að halda á botninum og Akureyri freistar þess að komast í þéttan pakka liðanna um miðbik deildarinnar. Bjarni Fritzson er meiddur en hugðist reyna að taka þátt í leiknum en það varð ljóst strax í upphituninni...
5. desember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Akureyri-HK viðtal við Andra Snæ
Akureyri Handboltafélag mætir HK í kvöld í Olísdeild karla í handbolta. Leikurinn fer fram í Höllinni á Akureyri og hefst kl.19.15. Vefurinn Norðursport birtir í dag eftirfarandi viðtal við Andra Snæ Stefánsson, leikmann Akureyrar þar sem fjallað er um leik kvöldsins...
4. desember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Handboltaveisla framundan í Höllinni
Það verður heldur betur líf og fjör í handboltanum á Akureyri næstu dagana. Meistaraflokkur Akureyrar tekur á móti HK í tveim leikjum sem báðir eru gríðarlega mikilvægir. Liðin mætast fyrst í Olís deildinni á fimmtudagskvöldið klukkan 19:15 og aftur á sunnudaginn klukkan 16:00...
30. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leik ÍBV og Akureyrar frestað enn á ný
Ekkert verður af leik ÍBV og Akureyrar í dag þar sem ekki gekk fyrir Akureyrarliðið að komast til Eyja. Ákvörðun um nýjan leikdag verður væntanlega tekin á morgun, mánudag. Akureyrarliðið á tvo heimaleiki gegn HK á næstu dögum...
30. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar
2. flokkur: Leikir helgarinnar gegn Stjörnunni frestast
Leikirnir Akureyrar og Stjörnunnar sem áttu að vera núna um helgina hefur báðum verið frestað þar sem samgöngur hafa ekki verið ákjósanlegar í dag. Ekki liggur fyrir endanleg tímasetning á leikjunum tveimur en við tilkynnum það hér á síðunni um leið og þær fást staðfestar...
 << Nýrri fréttirEldri fréttir >> 
Lokabaráttan hjá Ungmennaliðinu

Akureyri á Facebook


    

Danski handboltinn
Þýski handboltinn
Norski handboltinn
Sænski handboltinn
Færeyski handboltinn

Þýskar handboltafréttir
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson