 | |
 | 28. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Þakkir til Samherja fyrir ómetanlegan styrkSamherji hf. boðaði til móttöku í KA-heimilinu í gær og afhenti við það tækifæri styrki til ýmissa samfélagsverkefna, samtals upp á 90 milljónir króna. Töluverður hluti styrkjanna eru veittir til íþrótta og æskulýðsstarfs en auk þess verður Samherji nú einn helsti stuðningsaðili Íþróttasambands fatlaðra vegna Special Olympics... |
|
 | 27. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar 2. flokkur: Góður sigur á Fram í dagStrákarnir í Akureyri-1 luku deildarkeppninni með flottum sigri á Fram í lokaumferð 1. deildarinnar. Í fyrri hálfleik var lengst af jafnt á flestum tölum. Undir lok hálfleiksins náði Akureyri þó loks smá forskoti sem var reyndar ekki nema tvö mörk í leikhlénu, 15-13... |
|
 | 27. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar 2. flokkur: Akureyri-1 mætir Fram í dag miðv.dagÞó að meistaraflokkur Akureyrar hafi lokið keppni að sinni þá er allt í fullum gangi hjá strákunum í 2. flokki. Á miðvikudaginn taka strákarnir í Akureyri-1 á móti Fram hér Höllinni en það er síðasti leikur þeirra í deildarkeppninni. Leikurinn hefst klukkan 18:00... |
|
 | 26. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Hvað sögðu menn eftir leikinn gegn HK?Við fundum fáein viðtöl við leikmenn og þjálfara eftir lokaleik Akureyrar á þessu tímabili. Eftir að hafa verið með í úrslitakeppninni undandfarin þrjú ár þá fannst mönnum að vonum snubbótt að vera komnir í sumarfrí á þessum árstíma... |
|
 | 25. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Tap fyrir HK í kaflaskiptum leikÞað sást strax í upphituninni í kvöld að Akureyrarliðið mætti stresslaust í leikinn staðráðið í að hafa gaman af hlutunum. Enda fóru þeir frábærlega af stað í leiknum og eftir korters leik höfðu þeir náð yfirburðastöðu, 3 – 9 og leikur þeirra verið frábær... |
|
 | 25. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Leikur dagsins: HK – Akureyri bein textalýsingÍ kvöld klukkan 19:30 lýkur deildarkeppni karla með fjórum leikjum. Akureyri sækir HK heim í Digranesið og þó að liðið hafi ekki að miklu að keppa þá viljum við að sjálfsögðu fá sigur og enda þannig tímabilið á tveimur sigurleikjum. HK liðið á hins vegar möguleika... |
|
 | 24. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Myndband frá sigurleiknum gegn AftureldinguAkureyrarliðið sýndi hvað í því bjó á fimmtudaginn þegar það tryggði sæti sitt í úrvalsdeildinni með fjögurra marka sigri á baráttuglöðu liði Aftureldingar. Feðgarnir Þórir Tryggvason og Hákon Ingi Þórisson tóku að vanda fjölmargar myndir og myndskeið... |
|
 | 23. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Útileikur gegn HK í lokaumferðinni á mánudaginn

N1-deildinni lýkur á mánudaginn þegar 21. umferðin verður leikin. Akureyri sækir HK liðið heim í Digranesið og með sigri í leiknum mun liðið tryggja sér 5. sæti deildarinnar. Að sjálfsögðu er mikilvægt að klára deildina með stæl og vinna síðasta leikinn... |
|
 | 23. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Heimir Örn í viðtali við MorgunblaðiðEftir stórkostlega frammistöðu í síðasta leik valdi Morgunblaðið Heimi Örn Árnason besta leikmann 20. umferðar N1-deildarinnar. Af því tilefni tók Ívar Benendiktsson blaðamaður mbl Heimi í viðtal. Við birtum viðtalið hér... |
|
 | 23. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Heimir, Guðmundur Hólmar og Geir í úrvalsliði 20. umferðarMorgunblaðið og Handbolti.org birta í dag úrvalslið 20. umferðar N1 deildar karla. Frammistaða Akureyrarliðsins í síðasta leik vakti greinilega athygli því liðið á tvo leikmenn hjá hvorum aðila. Morgunblaðið velur Heimi Örn Árnason besta leikmann umferðarinnar... |
|
 | 22. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Hvað sögðu menn eftir Aftureldingarleikinn?Andri Yrkill Valsson, blaðamaður mbl ræddi við menn leiksins þá Heimi Örn Árnason og Davíð Hlíðdal Svansson eftir leikinn. Sömuleiðis fylgja hér vídeóviðtöl við Sævar Árnason og Konráð Olavsson... |
|
 | 21. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Dýrmætur sigur á Aftureldingu í kvöldAkureyri sigraði Aftureldingu, 29:25, í næstsíðustu umferð úrvalsdeildar karla, N1-deildinni í handknattleik í kvöld. Akureyringar tryggðu sér þar með sæti í deildinni á næsta tímabili. Leikurinn fór fjörlega af stað, jafnt á öllum tölum upp í 7-7... |
|
 | 21. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Leikur dagsins: Akureyri - Afturelding - útsendingarÞað er runninn upp leikdagur og hann er einn af þeim mikilvægustu á tímabilinu. Ætlar Akureyrarliðið að stíga upp og sína hvað í því býr eða lenda í bullandi vandræðum í lokaumferðinni? Það er ljóst að Aftureldingarmenn munu leggja allt í sölurnar... |
|
 | 19. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Úrslitaleikur gegn Aftureldingu 19:30 á fimmtudaginnÞað gera sér væntanlega allir grein fyrir mikilvægi leiks Akureyrar og Aftureldingar á fimmtudaginn. Bæði liðin eru í hópi þeirra liða sem geta fallið úr deildinni en auk þeirra eru Valur og HK í þeim hópi... |
|
 | 15. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Kynningarþáttur um Akureyri hjá Sport.isFyrir leik Akureyrar og Vals í gær ákváðu aðstandendur Sport.is að kynnast aðeins aðstöðunni sem Akureyri Handboltafélag hefur og einnig að kynnast aðeins stemningunni í hópnum. Virkilega gaman af þessu... |
|
| << Nýrri fréttir Eldri fréttir >> |