Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




Fréttayfirlit
1. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Handboltaveisla framundan
Nú styttist í handboltavertíðina og eins og undanfarin ár er æfingamótið Opna Norðlenska lokapunktur í undirbúningi Akureyrarliðsins. Að þessu sinni taka fjögur lið þátt í mótinu, Fram, ÍR og 1. deildarliði Hamranna auk heimamanna...
31. ágúst 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Tomas og Kristján Orri í úrvalsliði Hafnarfjarðarmótsins
Við lok Hafnarfjarðarmótsins í gær var tilkynnt um val á úrvalsliði mótsins. Akureyri Handboltafélag átti tvo fulltrúa í liðinu en það voru Tomas Olavsson, besti markvörðurinn og Kristján Orri Jóhannsson, besti hægri hornamaðurinn...
30. ágúst 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Sigur á ÍBV á Hafnarfjarðarmótinu
Í dag var síðasti dagur Hafnarfjarðarmótsins og hófst hann með leik Akureyrar og Íslandsmeistara ÍBV. Akureyrarliðið byrjaði illa í leiknum og virtust Vestmannaeyingar ætla að valta yfir okkar menn, náðu mest tíu marka forskoti. En Akureyringar gáfust ekki upp ...
29. ágúst 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Tveggja marka tap gegn FH í kvöld - myndir
Akureyrarliðið byrjaði illa gegn FH í kvöld og náði FH fljótlega fjögurra marka forskoti. Akureyri vann sig smám saman inn í leikinn, ekki síst vegna góðrar frammistöðu Tómasar í markinu þannig að forysta FH var aðeins tvö mörk í hálfleik, 15-13...
29. ágúst 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Sverre í viðtali við fimmeinn.is eftir Haukaleikinn
Tíðindamaður handboltasíðunnar fimmeinn.is, Þráinn Guðbrandsson ræddi við Sverre Jakobsson eftir leikinn gegn Haukum í Hafnarfjarðarmótinu. Við birtum hér viðtalið og nokkra myndir frá leik Akureyrar og Hauka sem einnig eru fengnar af fimmeinn.is...
28. ágúst 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Þriggja marka sigur Hauka í fyrsta leik
Hafnarfjarðarmótið hófst í dag með tveim leikjum. Í fyrri leiknum sigraði FH Íslandsmeistara ÍBV 27-21. Í seinni viðureign dagsins mættust Akureyri og Haukar. Akureyri var sterkara liðið í fyrri hálfleik og leiddi með einu marki, 13-12. Akureyri hélt frumkvæðinu í fyrra korterið í seinni hálfleiknum...
27. ágúst 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Undirritun leikmannasamninga
Í dag, miðvikudag var formlega gengið frá samningum við sex leikmenn Akureyrar Handboltafélags. Sigþór Árni Heimisson og Kristján Orri Jóhannsson framlengdu sína samninga en þeir léku báðir með liðinu í fyrravetur. Sverre Andreas Jakobsson, Ingimundur Ingimundarson, Elías Már Halldórsson og Daníel Einarsson...
26. ágúst 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Fjölgun hjá Þrándi og Hafrúnu
Það er í nógu að snúast hjá Þrándi Gíslasyni þessa dagana. Ekki bara á handboltavellinum því frumburður hans og Hafrúnar Hafliðadóttur er nýkominn í heiminn. Stór og stæðilegur strákur, 18 merkur og 58 cm langur...
25. ágúst 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Akureyri leikur á Hafnarfjarðarmótinu um helgina
Nú er heldur betur að færast fjör í undirbúning handboltaliðanna fyrir komandi tímabil. Framundan eru fjölmörg æfingamót en eitt það öflugasta verður í Íþróttahúsinu í Strandgötu í Hafnarfirði um næstu helgi. Þar taka þátt fjögur lið, Akureyri Handboltafélag...
20. ágúst 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Óvæntur æfingaleikur við færeyska liðið H71
Færeyska handboltaliðið H71 hefur verið í æfingabúðum hér á Norðurlandi síðustu daga, um er að ræða bæði meistaralokk og yngri leikmenn. Í gær, þriðjudag léku þeir æfingaleik við Akureyri Handboltafélag í KA heimilinu og lauk leiknum með fimm marka sigri Akureyrar...
16. ágúst 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Vel heppnuð ferð til Eyja
Akureyrarliðið mætti til Vestmannaeyja seinnipartinn á fimmtudaginn og æfði þá um kvöldið. Önnur æfing var síðan fyrripart föstudagsins en síðan æfingaleikur gegn ÍBV um kvöldið. Leikið var 3 x 20 mínútur og lauk leiknum með jafntefli...
13. ágúst 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Æfingabúðir og leikir í Vestmannaeyjum
Á fimmtudaginn heldur Akureyrarliðið til Vestmanneyja þar sem dvalið verður í æfingabúðum auk þess sem liðið leikur tvo æfingaleiki við lið Íslandsmeistara ÍBV. Þetta er að sjálfsögðu gríðarlega mikilvægt fyrir bæði liðin sem ekki hafa nálæg nágrannalið til æfingaleikja...
5. ágúst 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Fjör á æfingu hjá Akureyri Handboltafélagi
Nú að lokinni verslunarmannahelgi hefst lokaspretturinn í undirbúningi fyrir komandi tímabil handboltamanna. Í júlí hafa strákarnir séð sjálfir um að halda sér í formi en nú er alvaran tekin við á nýjan leik...
20. júní 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Sverre Jakobsson í viðtali við fimmeinn.is
Við höldum áfram að vitna í viðtöl við nýja leikmenn og þjálfara Akureyrar Handboltafélags. Að þessu sinni birtum við viðtal sem Lúther Gestsson tók við Sverre Andreas Jakobsson, nýráðinn þjálfara og leikmann og birtist á vefnum fimmeinn.is...
19. júní 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Elías Már Halldórsson í viðtali við fimmeinn.is
Eins og komið hefur fram þá er Elías Már Halldórsson genginn í raðir Akureyrar Handboltafélags frá bikar- og deildarmeisturum Hauka. Þessi tíðindi komu ýmsum á óvart enda höfðu engar sögusagnir komist á kreik um málið. Lúther Gestsson brá skjótt við og tók af þessu tilefni viðtal við Elías Má...
 << Nýrri fréttirEldri fréttir >> 
Lokabaráttan hjá Ungmennaliðinu

Akureyri á Facebook


    

Danski handboltinn
Þýski handboltinn
Norski handboltinn
Sænski handboltinn
Færeyski handboltinn

Þýskar handboltafréttir
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson