Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




Fréttayfirlit
19. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
2. flokkur: Akureyri mætir Gróttu í úrslitakeppninni
Deildarkeppni 2. flokks lauk á miðvikudaginn og nú er orðið ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppninni. Valur hafði býsna mikla yfirburði í deildinni en að öðru leiti var deildin ótrúlega jöfn og óhætt að segja að hver leikur hafi skipt miklu máli. Akureyrarliðið fór rólega af stað framan af vetri og virtist...
19. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Jovan Kukobat markvörður Olísdeildarinnar
Nú þegar Olís-deildarkeppninni er lokið hefur Morgunblaðið stillt upp úrvalsliði deildarinnar. Morgunblaðið hefur valið úrvalslið hverrar umferðar og væntanlega hafa blaðamennirnir haft þær útnefningar til hliðsjónar þegar þeir settu saman þetta lokayfirlit...
18. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Glæsimark Andra Snæs gegn Fram - myndband
Við komumst yfir myndband af glæsilegu marki Andra Snæs Stefánssonar úr leik Fram og Akureyrar í Olísdeild karla þann 13. mars síðastliðinn. Það er ekki úr vegi að smella því hér á síðuna í dag þar sem Andri Snær á einmitt afmæli í dag, 18. apríl...
16. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Þrándur og Sigþór í úrvalsliði 21. umferðarinnar
Í dag birtir Morgunblaðið úrvalslið 21. umferðar Olís-deildar karla sem var leikin á mánudaginn. Akureyrarliðið á tvo fulltrúa í liðinu að þessu sinni, Þránd Gíslason línumann og Sigþór Árni Heimisson er valinn í stöðu vinstra hornamanns...
15. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Viðtöl eftir leik Akureyrar og HK
Blaðamenn mbl.is, visir.is og sport.is tóku þjálfara og leikmenn tali í Höllinni eftir að leikjum kvöldsins var lokið og endanleg röð liðanna í deildinni lá fyrir.
Byrjum á viðtölum Einars Sigtryggssonar, blaðamanns Morgunblaðsins sem ræddi við Heimi Örn Árnason og Óðinn Þór ...
15. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Góður sigur á HK og Akureyri upp í 6. sætið
Það var ýmislegt í húfi í lokaumferð Olís deildarinnar sem var leikin í gærkvöldi. Keppikefli Akureyrarliðsins var að vinna sig upp úr 7. sæti deildarinnar og sleppa þannig við umspilsleiki um veru liðsins í úrvalsdeildinni næsta tímabil...
14. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Akureyri mætir HK í Höllinni
Það er ástæða fyrir alla handknattleiksunnendur á Akureyri til að fjölmenna í Íþróttahöllina í kvöld en þá fer fram lokaumferð Olís-deildar karla. Sigur í leiknum gefur Akureyri tækifæri á að komast úr 7. sætinu. Til að það geti orðið þarf FH einnig að vinna ÍR en sá leikur fer fram á sama tíma...
12. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Jovan Kukobat í úrvalsliði 20. umferðar
Morgunblaðið hefur valið leikmenn 20. umferðar Olís-deildar karla sem fór fram á fimmtudaginn. Frábær frammistaða Jovan Kukobat í leiknum gegn Haukum fór ekki framhjá neinum og er hann verðskuldað valinn markvörður umferðarinnar...
11. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Hvernig var hljóðið í mönnum eftir Haukaleikinn?
Það var mikið um að vera á öllum vígstöðvum íþróttafréttaritara í gærkvöldi en einhver viðtöl eru komin fram sem við skulum kíkja á. Byrjum á viðtölum Guðmundar Marinós Ingvarssonar, sem birtust á visir.is en hann ræðir við Heimi Örn Árnason og tvo leikmenn Hauka...
10. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Rándýrt stig gegn Haukum í Hafnarfirðinum
Það er óhætt að segja að það hafi verið rafmagnað andrúmsloft í Schenkerhöllinni í Hafnarfirði í kvöld þegar Akureyri sótti Haukana heim. Bæði lið spiluðu sterkan varnarleik í upphafi auk þess sem Jovan Kukobat fór á kostum í Akureyrarmarkinu. Það liðu rúmlega átta mínútur þar til Kristján Orri Jóhannsson...
10. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Haukar – Akureyri í beinni á RÚV
Næstsíðasta umferð Olís-deildar karla verður spiluð í kvöld en þá fara samtímis fram fjórir leikir og verður flautað til leiks klukkan 19:30. Augu stuðningsmanna Akureyrar beinast að sjálfsögðu að leiknum í Scenkerhöllinni þar sem okkar menn heimsækja ofurlið Hauka...
8. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Sjónvarpsleikur á fimmtudaginn gegn Haukum
Leikur Hauka og Akureyrar á fimmtudaginn verður í beinni útsendingu á RÚV Íþróttir. Útsendingin hefst klukkan 19:15 en leikurinn sjálfur klukkan 19:30. Haukar hafa verið erfiðir heim að sækja í vetur og einungis tapað þar einu stigi en það var jafnteflisleikur gegn Val...
6. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Spennandi lokaumferðir í Olís-deildinni
Akureyri mætir aftur í Hafnarfjörðinn á fimmtudaginn og mætir þá Haukum í næstsíðustu umferð Olís-deildarinnar. Það er gríðarlega mikið undir hjá báðum liðum en Haukar geta tryggt sér deildarmeistaratitilinn á meðan Akureyri er í hörku baráttu um að sleppa við umspilið...
1. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
2. flokkur: Tap í síðustu tveim leikjunum
Strákarnir í 2. flokki léku tvo síðustu deildarleikina fyrir sunnan um síðustu helgi. Því miður náðust ekki stig í þessum leikjum, fyrri leikurinn var gegn Val og tapaðist hann illa eða 37-27. Seinni leikurinn var gegn Aftureldingu og þar misstu strákarnir góða stöðu niður...
29. mars 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar
Sigþór leikmaður 19. umferðar að áliti Morgunblaðsins
Morgunblaðið hefur valið leikmenn 19. umferðar Olís-deildar karla sem fór fram í síðustu viku. Akureyrarliðið á þrjá fulltrúa í liði vikunnar að þessu sinni eftir magnaðan sigurleik gegn FH. Það eru Sigþór Árni Heimisson vinstri skytta, Þrándur Gíslason línumaður og Hreinn Þór Hauksson sem varnarmaður...
 << Nýrri fréttirEldri fréttir >> 
Lokabaráttan hjá Ungmennaliðinu

Akureyri á Facebook


    

Danski handboltinn
Þýski handboltinn
Norski handboltinn
Sænski handboltinn
Færeyski handboltinn

Þýskar handboltafréttir
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson