 | |
 | 29. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Stórsigur hjá KA/Þór gegn UMFA í kvennaboltanumÞað var mikill handboltadagur á Akureyri á laugardaginn. Á meðan Akureyrarliðið lék gegn ÍR í Austurberginu léku Hamrarnir sinn fyrsta leik í 1. deild eins og fjallað er um hér á síðunni. En jafnframt lék KA/Þór sinn fyrsta heimaleik í úrvalsdeild kvenna í KA-heimilinu... |
|
 | 29. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Hamrarnir hófu deildarkeppnina með sigri - myndirÞað var sögulegur leikur hjá Hömrunum á laugardaginn þegar þeir léku sinn fyrsta leik í 1. deildinni. Sterkt samband er á milli Hamranna og Akureyrar Handboltafélags enda eru allnokkrir leikmenn úr æfingahópi Akureyrar á láni hjá Hömrunum auk þess sem margir leikmenn úr 2. flokki Akureyrar ... |
|
 | 29. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Viðtöl eftir leik ÍR og AkureyrarÍvar Benediktsson, blaðamaður Morgunblaðsins var mættur í Austurbergið í gær og tók þar viðtöl við Heimi Örn Árnason, þjálfara Akureyrar svo og Kristófer Fannar Guðmundsson, markvörð og hetju ÍR-inga. Viðtöl Ívars má sjá hér að neðan... |
|
 | 29. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Tap gegn ÍR á lokamínútum leiksinsÞað var hörkuleikur þegar Akureyri og ÍR mættust í Austurberginu. Fyrri hálfleikur var gríðarlega spennandi, Akureyri hafði frumkvæðið í upphafi og náði nokkrum sinnum tveggja marka forystu, t.d. 4-6. ÍR jafnaði í 7-7 og eftir það munaði aldrei nema einu marki... |
|
 | 28. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Leikur dagsins: ÍR – Akureyri í beinni á RÚVÞað má búast við hörkuleik þegar Akureyri fer í heimsókn til ÍR-inga í Austurbergið. ÍR kom af krafti til leiks í úrvalsdeildinni í fyrravetur og fór í fjögurra liða úrslitin auk þess að hampa bikarmeistaratitlinum... |
|
 | 27. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Íþróttavefurinn Norðursport.net í loftiðÍ vikunni fór í loftið nýr norðlenskur íþróttafréttamiðill sem nefnist Norðursport. Þessi miðill ætlar sér að fjalla um allar íþróttir á Akureyri og nágrenni, auk þess að fylgjast með íþróttamönnum frá Akureyri úti í hinum stóra heimi. Ætlunin er sömuleiðis að yngri íþróttaiðkendur fái sína umfjöllun... |
|
 | 27. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Síðbúin viðtöl eftir sigurleikinn á FramÞó að nokkuð sé liðið frá leik Akureyrar og Fram í fyrstu umferð Olís-deildarinnar þá ætlum við að viðhalda þeirri venju að safna saman viðtölum við þjálfara og leikmenn úr ýmsum fjölmiðlum. Við byrjum á viðtölum Birgis H. Stefánssonar sem birtust á visir.is... |
|
 | 25. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Fjáröflunarátak fyrir komandi leiktímabil Kæri stuðningsmaður Við leitum til þín til að hjálpa okkur til að ná enn betri árangri en áður. Akureyri Handboltafélag er án efa eitt af stóru liðunum í íslenskum handbolta. Félagið heldur úti meistaraflokki ásamt tveimur liðum í 2. flokki karla. Við búum við þær aðstæður að þurfa að ferðast mest allra liða... |
|
 | 24. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Leikmenn umferðarinnar að mati mbl og handbolti.orgÞá hafa Morgunblaðið og handbolti.org birt niðurstöður sínar á liði 1. umferðar Olís-deildarinnar. Leikmenn ÍBV koma töluvert við sögu enda fagnaði ÍBV-liðið mögnuðum sigri í umferðinni. Lið Morgunblaðsins er þannig skipað... |
|
 | 23. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Valþór og Vladimir í liði umferðarinnar hjá sport.isNú þegar fyrstu umferð Olís-deildarinnar er lokið má búast við að fjölmiðlar fari að stilla upp þeim leikmönnum sem þeim finnst hafa skarað framúr. Sport.is ríður á vaðið með val á liði 1. umferðar. Að mati blaðamanna sport.is voru það lið ÍBV, Akureyrar og HK sem léku best í umferðinni. Hér á eftir má sjá val þeirra sport.is manna og stuttan rökstuðning hjá hverjum og einum:... |
|
 | 19. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Sannfærandi sigur Akureyrar í fyrsta leikÞað var ekki laust við að það væri taugatitringur í leikmönnum og áhorfendum í Íþróttahöllinni þegar Akureyri og Fram mættust í opnunarleik Olís-deildarinnar. Gríðarlega öflugur varnarleikur og frábær markvarsla gerði það að verkum að nánast engin mörk voru skoruð framan af leiknum... |
|
 | 17. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Handboltinn byrjar fyrir alvöru á fimmtudaginnLoksins er komið að leikdegi í úrvalsdeild hjá meistaraflokki karla. Deildin hefur fengið nýtt nafn, heitir að þessu sinni Olís-deildin. Fyrstu mótherjar Akureyrar eru engir aðrir en Íslandsmeistarar Fram. Leikmenn ætla svo sannarlega að sýna að þeir séu tilbúnir í slaginn... |
|
 | 15. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Leikmannahópur Akureyrar í veturNú þegar einungis nokkrir dagar eru í fyrstu umferðina í úrvalsdeildinni sem nú kallast Olís-deildin er ekki úr vegi að renna yfir leikmannahópinn sem Akureyri teflir fram í vetur. Leikmenn sem komið hafa til lið við okkur síðan í vor eru... |
|
 | 14. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar 2. flokkur: Akureyri sigraði sinn riðilÍ dag var leikið um réttinn til að spila í efstu deild hjá 2. flokki karla. Akureyri, Valur og ÍR voru í D-riðli sem var leikinn hér í Íþróttahöllinni þar sem allir léku við alla og hver leikur var 2 x 20 mínútur. Í fyrsta leik mættust Valur og ÍR. Valsmenn með Geir Guðmundsson í fararbroddi... |
|
 | 13. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar Leikmannakynningin 2013 – myndirÞað var góður hópur sem kom til að kynna sér starfið framundan hjá Akureyri Handboltafélagi. Hlynur Jónsson bauð fólk velkomið og fór yfir ýmislegt sem framundan er í félagsstarfinu. Hlynur kynnti fjárhagsuppgjörið fyrir árið 2012. Fram kom að velta ársins var um 35 milljónir sem var svipað og árið áður... |
|
| << Nýrri fréttir Eldri fréttir >> |